Sýningum á revíunni Ekki trúa öllu sem þú heyrir (og ekki trúa öllu sem þú sérð) sem Ungmennafélag Reykdæla sýnir um þessar mundir í félagsheimilinu Logalandi fer nú fækkandi. Leikritið hefur fengið mjög góðar viðtökur og þykir skemmtileg innansveitarkróníka en efnið á þó vel við víðar en Borgarfjörðinn. Sýnt er í kvöld, miðvikudag og næsta laugardag 31. mars og síðustu sýningar eru áætlaðar á miðvikudag 4. apríl og laugardag 7. apríl.

{mos_fb_discuss:2}