Með fulla vasa af grjóti sýnt á Akureyri
Um næstu helgi, 26. og 27. janúar, heldur Þjóðleikhúsið í leikferð norður yfir heiðar með Með fulla vasa af grjóti. Í verkinu kynnumst við fjölda skrautlegra og skemmtilegra persóna. Hilmir Snær Guðnason og Stefán Karl Stefánsson fara með öll fjórtán hlutverkin í sýningunni, og bregða sér jafnt í gervi karla sem kvenna, og ungra sem aldinna. Alls verða tvær sýningar í Samkomuhúsinu á Akureyri, kvöldsýning á laugardeginum en á sunnudeginum er sýning kl. 16. Með fulla vasa af grjóti var frumsýnt í Þjóðleikhúsinu í árslok 2000 og fékk þá frábærar viðtökur. Sýningar urðu alls 180 og yfir 40.000 manns...
Sjá meira


