Author: lensherra

Grease í Vestmannaeyjum

Leikfélag Vestmannaeyja hefur hafið æfingar á stórsöngleiknum Grease í leikstjórn Ágústu Skúladóttur, en félagið undirritaði samning við Nordiska ApS um sýningarétt á verkinu í nóvember síðastliðinn. Almennar æfingar hófust mánaðarmótin janúar/febrúar, en dansæfingar hófust fyrir áramót og ganga þær mjög vel. Stór hópur kemur að sýningunni eða um 35 til 40 manns. Höfundar verksins eru Jim Jacobs og Warren Casey, en Veturliði Guðnason sá um þýðingu. Aðalhlutverk eru í höndum Emmu Bjarnadóttur sem leikur Sandy, Ævars Arnar Kristinssonar sem leikur Danny, Sunnu Guðlaugsdóttur sem leikur Rizzo og Zindra Freys Ragnarssonar sem leikur Kenickie. Stefnt er að því að  frumsýna...

Sjá meira

Tengdó – Sigurvegari Grímunnar 2012 snýr aftur

Tengdó – Sönn saga um leitina að sannleikanum, snýr aftur á fjalir Borgarleikhússins 7. febrúar. Í Tengdó birtist sönn saga ástandsbarns sem leitar föður síns áratugum saman. Við fylgjumst með djúpstæðri þrá barnsins til að kynnast uppruna sínum en um leið er horft gagnrýnum augum á íslenskt samfélag. Í sögunni takast á gleði og sorg því leitin að sannleikanum er í senn falleg og þyrnum stráð. Tengdó er samstarfsverkefni Borgarleikhússins og CommonNonsense. Tengdó snerti áhorfendur og gagnrýnendur djúpt á síðasta leikári, var ótvíræður sigurvegari á Grímuhátíðinni í vor og snýr því aftur á fjalirnar núna. Sýningin er óvenjulega persónuleg...

Sjá meira

Halaleikhópurinn frumsýnir Rympu á ruslahaugnum

Halaleikhópurinn setur um þessar mundir á svið fjölskylduleikritið Rympa á ruslahaugnum í leikstjórn Herdísar Rögnu Þorgeirsdóttur. Frumsýnt verður sunnudaginn 10. febrúar, í Halanum, Hátúni 12. Höfundur verksins er Herdís Egilsdóttir kennari, sem kenndi lengst af við skóla Ísaks Jónssonar. Herdís hefur gefið út heilmikið af bókum, sjónvarpsefni og leikritum fyrir börn. Hún hefur hlotið ótal viðurkenningar og verðlaun fyrir starf sitt og rithöfundarferil. Þetta er sýning með tónlist og söngvum, fyrir börn á öllum aldri. Leikritið fjallar um Rympu sem býr á ruslahaugnum. Hún er frekar ófyrirleitin og hagar lífi sínu ekki alltaf eftir lögum og reglu og er...

Sjá meira

Ormstunga/Ástarsaga í Borgarleikhúsinu

Ormstunga/Ástarsaga, leikverk byggt á Gunnlaugs sögu Ormstungu eftir óþekkta konu eða mann í leikgerð Benedikts Erlingssonar og Halldóru Geirharðs, verður frumsýnt þann 8. febrúar á Nýja sviði Borgarleikhússins. Gunnlaugs saga er saga um ástir og afbrýði. Fyrsti og langfrægasti ástarþríhyrningur heimsbókmenntanna. Þar er rakin saga skáldsins Gunnlaugs Ormstungu frá Hvítársíðu, Helgu fögru úr Borgarnesi og Hrafns Önundarsonar úr Mosfellssveit. Leikstjóri er Peter Engkvist. Blóðugur harmleikur þar sem tvinnast saman mikið ofbeldi, mikil ást og vísnagerð. Þótt sagan sé eftir óþekkta konu eða mann er hún samt lesin í grunnskólum landsins og ættu því að vera sem flestum kunn. Leiksýningin...

Sjá meira

Macbeth og Jónsmessunótt kveðja

Tvær sýningar, sem hafa vakið mikla athygli og fengið frábærar viðtökur, verða sýndar í Þjóðleikhúsinu í síðasta sinn nú um helgina. Um er að ræða Macbeth eftir Shakespeare í leikstjórn Benedicts Andrews og Jónsmessunótt eftir Hávar Sigurjónsson í leikstjórn Hörpu Arnardóttur. Síðustu sýningar á Macbeth eru 1. og 2. febrúar en síðasta sýning á Jónsmessu nótt þann 3. febrúar. Sýning Benedicts Andrews á Macbeth hefur þótt sæta miklum tíðindum, enda er Andrews einn af fremstu leikstjórum sinnar kynslóðar og hann vinnur hér með íslensku listafólki í fremstu röð. Hann hefur unnið til fjölda verðlauna á alþjóðlegum vettvangi, og hlaut...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert