Leiksmiðju Austurlands hleypt af stokkunum
Sviðslistamiðstöð á Egilsstöðum hleypir nú í haust af stokkunum verkefninu Leiksmiðja Austurlands sem samanstendur af röð leiklistartengdra námskeiða í fjórðungnum. Verkefnið er styrkt af Menningarmiðstöð Fljótsdalshéraðs og Menningarráði Austurlands. Fyrsta námskeið Leiksmiðjunnar verður þriggja helga námskeið í handritagerð og leikstjórn sem haldið verður 26. október til 10. nóvember í Menningarmiðstöðinni Sláturhúsinu á Egilsstöðum. Kennarar námskeiðsins eru Auðdís Tinna Hallgrímsdóttir, kvikmyndagerðarmaður, og Kristian Guttesen, ljóðskáld. Helgina 1. – 3. nóvember er stefnt að því að fara í leikhús- og fræðsluferð til Akureyrar, ef aðstæður leyfa. Námskeiðið er ætlað öllum sem áhuga hafa á handritagerð og leikstjórn fyrir sviðsuppsetningar eða kvikmyndagerð...
Sjá meira


