Author: lensherra

Íslenskur vetur hjá Þjóðleikhúsinu

Þjóðleikhúsið býður upp spennandi leikár þar sem öll frumsýnd verk verða íslensk. Kastljósinu verður varpað sérstaklega á konur og baráttusögur þeirra við ólíkar aðstæður, en líka karlmanninn, raunir hans og dáðir. Að auki verða kynnt nútímaleg dansleikhúsverk og síðast en ekki síst er börnum á öllum aldri boðið upp á fjölbreytt úrval leiksýninga.   Verkefni vetrarins eru afar fjölbreytt og meðan sum eru frumsamin frá grunni sækja önnur innblástur í bókmenntaverk sem þegar hafa snert taug í þjóðarsálinni og eiga erindi. Sjá nánari upplýsingar á www.leikhusid.is  ...

Sjá meira

Petra, tvær aukasýningar í Tjarnarbíói

Listahópurinn DFM, sem færði okkur Dansaðu fyrir mig síðasta vetur, sýnir tvær aukasýningar á nýja verkinu Petra. Sýningarnar fara fram 5. og 11. september. Margir Íslendingar kannast við Petru, en hún kom á fót glæsilegu steinasafni á Austfjörðum. Þegar frú Petra Sveinsdóttir á Stöðvarfirði var spurð hvort álfasamfélagið væri ekki í algjöru uppnámi vegna steinasöfnunar hennar þar eystra, svaraði hún: „Ég held að þeir viti að mikið af steinunum hverfi niður í jörðina og komi ekki fyrir neins manns augu nema þeim sé bjargað.“ Á þessum nótum hefst leiksýningin „Petra“, byggð á ævi frú Petru Sveinsdóttur og ástríðufullri söfnunaráráttu...

Sjá meira

Sumri Frystiklefans lýkur með heimsókn í Tjarnarbíó

Til að kveðja sumarið og heilsa haustinu munu öðlingarnir Kári Viðarsson og Benedikt Karl Gröndal færa Trúðleik eftir Hallgrím H. Helgason á svið í Tjarnarbíó. Halldór Gylfason leikstýrði verkinu fyrir Frystiklefann árið 2012 og hlaut einróma lof gagnrýnenda og enginn leiklistaráhugamaður eða kona ætti að missa af. Trúðleikur verður sýndur í september á sunnudögum kl. 14 í Tjarnarbíói. Nánari upplýsingar á síðunni: www.tjarnarbio.is Nú er fyrsta sumarleikári Frystiklefans í Rifi formlega lokið og ætti gengi þess að vera hvatning til allra sem reka menningarstarfsemi úti á landi. Frystiklefinn bauð upp á hostelgistingu, leiksýningar, tónleika, gestasýningar og dagleg hálftíma íslenskunámskeið...

Sjá meira

NEATA stuttverkahátíðin 4. október

NEATA stuttverkahátíðin verður haldin í Mosfellsbæ 4. október 2014. Hátíðin verður með tiltölulega hefðbundu einþáttungahátíðarsniði, hámarkslengd þátta er 15 mínútur. Frestur til að tilkynna þátttöku á hátíðinni er til 10. september. Ekki verða gerð sérstök eyðublöð fyrir þátttökutilkynningar heldur skal senda þær með tölvupósti á info@leiklist.is Lengd hátíðarinnar miðast við að sýna frá ca. hádegi og enda svo á sameigilegum kvöldverði. Öll aðildarfélög í Bandalögum NEATA landanna geta sent þætti, eins marga og þau vilja. Ef sýnt þykir að hátíðin verði of löng verða þau félög sem flest verk hyggjast senda beðin um að fækka sínum verkum uns hæfilegri...

Sjá meira

IATA/AITA hátíð í Belgíu 2015

Dagana 6.-13. júlí 2015 verður alþjóðleg leiklistarhátið áhugamanna haldin í Westouter í Belgíu. Hátíðin er haldin annað hvert ár víðsvegar um heiminn, sú síðasta var haldin í Monaco 2013. Hátíðin er á vegum Alþjóða áhugaleikhúsráðsins IATA/AITA. Til hennar er boðið leiksýningum alls staðar að út heiminum og lögð áhersla  á að allar heimsálfur eigi þar fulltrúa. Undirbúningur þessara hátíða tekur langan tíma og þess vegna þarf að tilkynna þátttöku með löngum fyrirvara. Hér með er auglýst eftir umsóknum en allar upplýsingar um hátíðina, reglur hennar og markmið má finna á heimasíðu hennar http://www.spotsopwest.org/en/festival-2015 Sækja skal um fyrir 25. september....

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert