Síðasta sýning á Róðaríi
Nú er aðeins ein sýning eftir á leikritinu Róðarí eftir Hrund Ólafsdóttur, sem sýnt er í Tjarnarbíói. Verkið, sem tekur á viðkvæmu málefni, samskiptum innan fjölskyldunnar í skugga áfalla í fortíðinni, hefur verið lofuð jafnt af gagnrýnendum sem almennum áhorfendum. Lokasýning verður 30. október og hefst klukkan 20.00. Leikstjóri er Erling Jóhannesson. Verkið fjallar um fjögur systkini á miðjum aldri og móður þeirra, sem neyðast til að hittast þegar ein systirin veikist og þarf á hjálp að halda. Samheldni er ekki þeirra sterkasta hlið. Það er því þrautin þyngri að þurfa í sameiningu að ráða fram úr málum. Systkinin...
Sjá meira


