Author: lensherra

Aukasýningar á Emil á Sauðárkróki

Uppselt á 4 sýningar í röð – 3 aukasýningar Bætt hefur verið við þremur aukasýningum á Emil í Kattholti en uppselt hefur verið á fimm sýningar af átta. Leikfélag Sauðárkróks þakkar góðar viðtökur. Aukasýningar verða föstudag, laugardag og sunnudag. Þriðjudag 21.október kl. 18:30 uppselt Föstudag 24. október kl. 17:30 (aukasýning) Laugardag 25 október kl 14:00 (aukasýning) Sunnudag 26 október kl 16:00 (aukasýning – allra seinasta sýning)...

Sjá meira

Leikfélag Ölfuss frumsýnir Enginn með Steindóri

Leikfélag Ölfuss frumsýnir leikritið Enginn með Steindóri eftir Nínu Björk Jónsdóttur laugardagskvöldið 25. október kl. 20:00. Leikstjóri er F. Elli Hafliðason. Leikarar í sýningunni eru þau Aðalsteinn Jóhannsson, Axel Bergmann Sigurðsson, Árný Leifsdóttir, Benjamín Hallbjörnsson, Erla Dan Jónsdóttir, Hilmar Kristberg Jónsson, Jónheiður Ísleifsdóttir, Oddfreyja H. Oddfreysdóttir og Ólöf Þóra Þorkelsdóttir. Sýnt verður í Ráðhúsinu í Þorlákshöfn. Enginn með Steindóri er drepfyndið gamanleikrit sem kemur sífellt á óvart. Sagan gerist á heimili bankastjóra nokkurs og hans listelskandi ektakvinnu en þau hafa boðið foreldrum verðandi tengdasonar síns í mat. Þegar fólkið fer að kynnast tekur leikurinn að æsast og ekki lagast...

Sjá meira

Brúðkaup í Fjallabyggð

Leikfélag Fjallabyggðar frumsýnir gamanleikinn Brúðkaup eftir Guðmund Ólafsson föstudaginn 17. október kl. 20.00 í Menningarhúsi Fjallabyggðar, Tjarnarborg. Guðmundur er einnig leikstjóri verksins. Síðasta verk Leikfélags Fjallabyggðar, Stöngin inn, var valin athyglisverðasta áhugaleiksýning leikársins 2012-13 en það verk var líka skrifað og leikstýrt af Guðmundi Ólafssyni. Frumsýning föstudaginn 17. októver kl. 20.00 2. sýning sunnudaginn 19. október kl. 20.00 3. sýning þriðjudaginn 28. október kl. 20.00 4. sýning föstudaginn 31. október kl. 20.00 5. sýning laugardaginn 8. nóvember kl. 20.00 6. sýning fimmtudaginn 13. nóvember kl. 20.00   Miðaverð kr. 3.000.- Aldraðir, öryrkjar og börn yngri en 14 ára kr....

Sjá meira

Rommí á Bíldudal

Leikfélagið Baldur á Bíldudal vaknar úr nokkurra ára dvala núna á laugardag. Þá mun félagið frumsýna ameríska stykkið Rommí. Í aðalhlutverkum eru tveir af burðarásum félagsins í gegnum árin Hannes Friðriksson og Þuríður Sigurmundsdóttir. Bæði hafa þau starfað ötulega með félaginu síðustu áratugi. Hér er á ferðinni bráðhress gamanleikur en þó með alvarlegum undirtón. Leikstjóri verksins er Bílddælingurinn Elfar Logi Hannesson og er þetta í fyrsta sinn sem hann leikstýrir hjá félaginu. Gaman er að geta þess að hann hóf einmitt feril sinn með leikfélaginu Baldri í Félagsheimilinu Baldurshaga þar sem frumsýningin á Rommí fer fram. Rommí er eftir...

Sjá meira

Hundur í óskilum sýnir Öldina okkar

Félagarnir Eiríkur Stephensen og Hjörleifur Hjartarson í hljómsveitinni Hundur í Óskilum voru farnir að gæla við þá hugmynd að setja á svið gríðarstórt sjóv með 20 dönsurum og leikurum í tilefni af 20 ára afmæli sveitarinnar. Þeir neyddust hins vegar til að sníða sér stakk eftir vexti og nú trana þeir engum öðrum fram en sjálfum sér (enn eina ferðina) í glænýju leik- og tónverki sem kallast  Öldin okkar. Hundur í Óskilum er við sama heygarðshornið og í Sögu þjóðar, en spólar sig að þessu sinni í gegnum 21. öldina – þessi 14 ár sem liðin eru. Hundinum er náttúrlega ekkert íslenskt óviðkomandi; hann...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert