Barið í brestina á Króknum
Næstkomandi sunnudag, 26. apríl frumsýnir Leikfélag Sauðárkróks gamanleikinn Barið í brestina. Leikritið er skrifað af Guðmundi Ólafssyni og var það upprunalega sýnt af Leikfélagi Ólafsfjarðar árið 2001. Sögusviðið er sambyggð heilbrigðisstofnun og elliheimili og fá áhorfendur innsýn inn í líf starfsmanna og vistmanna, en auk þess ber á góma færeyskur knattspyrnumaður og magaskoðunartæki. 15 leikarar eru á sviðinu, en alls koma um 30 manns að sýningunni. Leikstjóri er Þröstur Guðbjartsson. Frumsýnt verður sunnudaginn 26. apríl á opnunardegi Sæluviku Skagfirðinga, en Leikfélag Sauðárkróks hefur sett upp sýningu hverja Sæluviku undanfarin 73 ár. Sýningin hefst kl. 20 og er sýnt í...
Sjá meira


