Sálir Jónanna ganga aftur í Aratungu
Laugardaginn 3. febrúar frumsýndi Leikdeild ungmennafélags Biskupstungna í Aratungu gamanleikritið Sálir Jónanna ganga aftur eftir þær Ingibjörgu Hjartardóttur, Sigrúnu Óskarsdóttur og Unni Guttormsdóttur. Hjalti Gunnarsson og Íris Blandon fara með aðalhlutverkin en leikarar eru 10 talsins. Leikstjórn er í höndum Gunnars Björns Guðmundssonar og er þetta í 9 skiptið sem hann leikstýrir hjá Leikdeildinni. Æfingar hafa gengið mjög vel og mikil stemmning verið á æfingum. Mikið hlegið og er nokkuð víst að um fjörugan gamanleik er að ræða. Leikritið er harmþrungin, siðferðisleg þjóðfélagádeila. Grallaraleg leikgerð á þjóðsögunni alkunnu um kerlinguna og sálina hans Jóns hennar. Í þessari útgáfu eru...
Sjá meira


