Allar Fréttir

Snertu mig – ekki! í Kópavogi

Höfundur Örn Alexandersson Leikstjórn Sigrún Tryggvadóttir Ljós Skúli Rúnar Hilmarsson  Leikmynd Þorleifur Eggertsson  Hljóð Hörður Sigurðarson Þann 16. september síðastliðinn frumsýndi Leikfélag Kópavogs nýtt íslenskt leikrit, Snertu mig – ekki, eftir Örn Alexandersson. Þetta var á degi íslenskrar náttúru...

Fjaðrafok / Strange Feathers í Tjarnarbíói

Fjaðrafok er nýtt verk ætlað börnum frá 18 mánaða aldri. Verkið er samstarfsverkefni Bíbí & Blaka og írska sirkúsflokksins Fidget Feet. Þessir hópar sameinast nú í fyrsta sinn og vinna nýja blöndu af loftfimleikum og dansi sérstaklega ætlaða yngstu kynslóðinni....

Samlestur á Extravaganza í Borgarleikhúsinu

Föstudaginn 16. september kl. 13.00 verður opinn samlestur á nýju verki Sölku Guðmundsdóttur, Extravaganza. Þetta er liður í því að opna leikhúsið og skapa skemmtilegan formála að væntanlegum sýningum. Fyrsta skrefið í æfingum leikrita er svokallaður samlestur. Þá kemur...

Nýjar spennandi vörur í Leikhúsbúðinni

Nú nálgast Hrekkjavakan óðfluga og margir örugglega farnir að velta fyrir sér gerfum og aðferðum. Leikhúsbúðin var að fá tvö frábær sett á alveg ótrúlegu verði, annars vegar Sugar Skull Kit og hins vegar Zombie Kit. Settið kostar ekki...

Snertu mig – ekki!

Nýtt íslenskt leikrit, Snertu mig – ekki! verður frumsýnt föstudaginn 16. september hjá Leikfélagi Kópavogs. Verkið er gamandrama sem fjallar um samband hjóna og vinkonu þeirra eða, eins og vinsælt hefur verið í íslenskum bíómyndum, vandamál miðaldra karlmanns. Snertu mig –...

Ubbi kóngur sækir um að fara til Monaco 2017

Þann 1. september sl. rann út frestur til að sækja um að fara með íslenska leiksýningu á alþjóðlegu leiklistarhátíðina í Monaco sem haldin verður í ágúst 2017. Tvær umsóknir bárust og skipaði stjórn Bandalagsins því þriggja manna valnefnd sem skilaði...

SENDING eftir Bjarna Jónsson

Laugardaginn 10. september kl. 20:00 frumsýnir Borgarleikhúsið á Nýja sviðinu nýtt verk eftir eitt okkar fremsta leikskáld, Bjarna Jónsson. Leikstjóri er Marta Nordal. Gretar Reynisson gerir leikmynd og Stefanía Adolfsdóttir búninga. Árið er 1982. Sjómannadagurinn er framundan. Það er...

Sóley Rós ræstitæknir

Frumsýningin í Tjarnarbíói laugardaginn 10. september kl. 20.30. Sóley Rós er 42 ára mamma, amma, eiginkona og skúringakona.Verkið er byggt á viðtölum við raunverulega íslenska hvunndagshetju sem hefur átt lygilegt lífshlaup, hefur kynnst mótlæti og sárum missi sem hver...

Byrjendanámskeið í sviðsbardagalistum

Byrjendanámskeið í sviðsbardagalistum hefst sunnudaginn 11. september. (5 skipti, 17 klst.) Staður: Dansverkstæðið, Skúlagata 30, Reykjavík. Tími: Sunnudagar kl. 12:00-15:0o (engin æfing 2. okt) Lokaæfing 16. okt. 12:00-17:00 Verð: 11.500 Kennari: Ine Camilla Bjørnsten Takmarkað pláss! Hafið samband á ahaettuatridi@arcticaction.no Nánari upplysingar um...

Opið hús hjá Borgarleikhúsinu og nýtt leikár kynnt

Laugardaginn 3. september opnar Borgarleikhúsið allt upp á gátt og býður alla velkomna í heimsókn milli klukkan 13:00 og 16:00. Að venju verða skoðunarferðir um húsið, innlit á æfingar og atriði á Stóra sviðinu. Villi vísindamaður mun kynna dagskrána...

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert