Allar Fréttir

Dagbók Önnu Frank aftur á svið

Dagbók Önnu Frank aftur á svið

Freyvangsleikhúsið frumsýndi nýja leikgerð á Dagbók Önnu Frank í febrúar á þessu ári en þurfti að hætta sýningum vegna samkomubanns í Covid-19 faraldrinum. Leikfélagið er þó ekki tilbúið að kveðja verkið og býður því upp á nokkrar sýningar á nýju leikári....

Aðalfundur BÍL haldinn í Kópavogi

Aðalfundur BÍL haldinn í Kópavogi

Aðalfundur Bandalags íslenskra leikfélaga var haldinn í Kópavogi laugardaginn 19. sept. Fundinum hafði verið frestað síðastliðið vor vegna Covid-19 en ákveðið var að halda fundinn nú með breyttu sniði og ljúka honum á einum degi. 12 aðildarfélög sendu fulltrúa...

Ljósa- og hljóðnámskeið í Þjóðleihúsinu

Ljósa- og hljóðnámskeið í Þjóðleihúsinu

Þjóðleikhúsið stendur fyrir námskeiðum í annarsvegar lýsingu og hinsvegar hljóðvinnslu í leikhúsi nú í september. Námskeiðin eru ætluð þeim sem einhverja reynslu á viðkomandi sviði og eru hugsuð til að dýpka og víkka þekkingu viðkomandi. Námskeiðin verða haldin dagana...

Beckett í borginni

Beckett í borginni

Kómedíuleikhúsið frumsýndi nýtt leikverk, Beðið eftir Beckett vestur í Haukadal í ágúst og heldur nú suður til höfuðborgarinnar. Tvær sýningar verða í Tjarnarbíó, þri. 8. og mið. 9. september kl. 20.00. Höfundur verksins og leikstjóri er Trausti Ólafsson en...

Sviðslistaæfingar geta hafist á ný

Sviðslistaæfingar geta hafist á ný

Snertingar verða heimilar við æfingar í sviðslistum, tónlist og við kvikmyndatöku frá 28. ágúst nk. samkvæmt nýrri auglýsingu heilbrigðisráðherra um takmörkun á samkomum vegna farsóttar sem birt var í dag. Hámarksfjöldi einstaklinga í sama rými mun áfram miðast við...

Beðið eftir Beckett

Beðið eftir Beckett

Kómedíuleikhúsið í samstarfi við Senuþjófinn frumsýnir 30. ágúst leikverkið Beðið eftir Beckett. Frumsýnt verður í leikhúsi Kómedíuleikhússins í Haukadal Dýrafirði. Höfundur verksins er Trausti Ólafsson sem jafnframt leikstýrir. Beðið eftir Beckett er guðdómleg kómedía sem fjallar um leikara nokkurn...

Aðalfundur BÍL 2020

Aðalfundur BÍL 2020

Stjórn Bandalags íslenskra leikfélaga boðar hér með til aðalfundar, laugardaginn 19. september kl. 10.00 í Leikhúsinu, Funalind 2 í Kópavogi. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf. Aðalfundur er með breyttu sniði í ár af alkunnum ástæðum. Gert er ráð fyrir að...

Sumarlokun Þjónustumiðstöðvar í júlí

Sumarlokun Þjónustumiðstöðvar í júlí

Þjónustumiðstöð Bandalags íslenskra leikfélaga verður lokuð vegna sumarfría frá 6. júlí út mánuðinn. Opnað verður að nýju þriðjudaginn 4. ágúst. Athugið að hægt er að panta vörur úr Leikhúsbúðinni og handrit úr Leikritasafninu en búast má við ögn lengri...

Leikfélag Fljótsdalshéraðs hlýtur menningarverðlaun

Leikfélag Fljótsdalshéraðs hlýtur menningarverðlaun

Menningarverðlaun Fljótsdalshéraðs voru veitt í annað sinn, 17. júní 2020 síðastliðinn. Verðlaunin eru veitt einstaklingi, stofnun eða samtökum sem viðurkenning fyrir eftirtektarvert framtak á sviði lista og menningar á liðnu ári. Hlutverk verðlaunanna er einnig að vera almenn hvatning...

Aðalfundir leikfélaganna

Aðalfundir leikfélaganna

Nokkur aðildarfélög BÍL hafa frestað aðalfundum sínum fram á haustið vegna Covid-19. Önnur hafa hinsvegar haldið aðalfundi síðustu daga og vikur. Aðalfundur Leikfélags Selfoss var haldinn í Litla leikhúsinu við Sigtún þann 3. júní síðastliðinn. Mæting á fundinn var...

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert