Nú hefur verið opnað fyrir miðasölu á 39 þrep, sýningu Leikfélags Hólmavíkur sem var valin Athyglisverðasta áhugaleiksýning ársins fyrr í mánuðinum.
39 þrep eftir Patrick Barlowe er byggt á kvikmynd eftir Alfred Hitchcock og skáldsögu eftir John Buchan. Þetta er spennugamanleikur sem segir frá Richard Hannay sem sogast inn í æsispennandi atburðarás þar sem morð, njósnarar, brjálaðir prófessorar, Skotar og vitaskuld íðilfagrar konur koma við sögu. Í verkinu eru 139 hlutverk en þau eru leikin af fjórum konum.
Sýning Leikfélags Hólmavíkur á 39 þrepum var valin áhugaverðasta áhugaleiksýning ársins af dómnefnd Þjóðleikhússins. Það var í þrítugasta og þriðja sinn sem Þjóðleikhúsið hefur staðið fyrir vali á áhugaleiksýningu ársins. Að þessu sinni sóttu alls tólf leikfélög um að koma til greina við valið með þrettán sýningar.
Formaður dómnefndar var Vala Fannell, en með henni í dómnefnd sátu Elín Smáradóttir sýningarstjóri og Oddur Júlíusson leikari.