Elsku barn snýr aftur á Nýja sviðið á fimmtudag
Verðlaunaverkið Elsku barn, eftir breska leikskáldið Dennis Kelly, snýr aftur á fjalir Nýja sviðsins fimmtudaginn 24. nóvember nk. Elsku barn er nístandi saga móður sem sökuð er um að myrða börnin sín tvö. Hér er á ferðinni áleitið verk sem veltir upp ýmsum heimspekilegum spurningum um eðli sannleikans, réttlæti og lygi, hvernig lifa má við ófyrirgefanlegan glæp og óbærilegan sársauka. Leikstjóri er Jón Páll Eyjólfsson sem áður hefur tekist á við ögrandi verk s.s. Vestrið eina, Maríubjölluna, Þú ert hér og Góðir Íslendingar. Sex leikarar taka þátt í sýningunni þau Unnur Ösp Stefánsdóttir, Halldóra Geirharðsdóttir, Benedikt Erlingsson, Hallgrímur Ólafsson,...
Sjá meira


