Year: 2011

Barnaleikritið Út í kött! í Tjarnarbíói

Lýðveldisleikhúsið sýnir leikritið Út í kött! eftir Benóný Ægisson í Tjarnarbíói sunnudaginn 30. janúar kl 14. Þetta er ævintýraleikur með dansi og söng fyrir börn en fullorðin börn ættu líka að hafa gaman að þessu fjöruga verki. Leikin atriði mynda skemmtilega umgjörð utan um söng- og dansatriði þar sem ævintýrapersónur í litríkum búningum bregða á leik. Því miður var ein af afleiðingum kreppunnar sú að aðgengi barna að leikhúsi takmarkaðist því heimsóknir leikhópa í skóla og leikskóla voru skornar niður og heyrast nánast til undantekninga núna. Lýðveldisleikhúsið vill bæta þetta ástand og býður skólum og leikskólum hópafslátt að sýningunni...

Sjá meira

Stutt í frumsýningu hjá Halaleikhópnum

Halaleikhópurinn vinnur nú hörðum höndum að uppfærslu sinni á verkinu Góðverkin kalla! eftir þá Ármann Guðmundsson, Sævar Sigurgeirsson og Þorgeir Tryggvason, en allir eru þeir meðlimir Ljótu hálfvitanna og ekki er þetta í fyrsta skipti þar sem þeir félagar koma að uppsetningu leikverka fyrir Halaleikhópinn með einhverjum hætti. Þess má til gamans geta að leikstjórar þetta leikárið eru að þessu sinni tveir, þau Oddur Bjarni Þorkelsson (sem er einmitt í Ljótu hálfvitunum) og Margrét Sverrisdóttir. Stefnt er á frumsýningu 4. febrúar. Góðverkin kalla! er gamanleikrit sem gerist á Gjaldeyri við Ystunöf þar sem lífið snýst um góðverk. Allir sem...

Sjá meira

Leikfélag Selfoss á fullu skriði

Hafnar eru æfingar hjá Leikfélagi Selfoss á nýju leikverki. Að þessu sinni var ákveðið að setja upp spunaverk í leikstjórn Gunnars Björns Guðmundssonar. Gunnar Björn hefur leikstýrt víða, meðal annars kvikmyndunum Astrópíu og Gauragangi sem og áramótaskaupum síðustu tveggja ára. Verkið er gamanleikur fyrir alla fjölskylduna, en meginþráður þess byggir á sunnlenskum þjóðsögum og er unnið út frá ákveðnum ramma þar sem leikhópurinn býr til sínar eigin persónur og vinnur með þær. Leikendur eru tíu talsins. Áætlaður frumsýningardagur er 25 febrúar....

Sjá meira

Helgi dauðans hjá Hugleik

Helgi dauðans nefnist nýtt íslenskt leikrit eftir Sigríði Láru Sigurjónsdóttur sem Hugleikur frumsýnir laugardaginn 22. janúar kl. 20.00 í húsnæði leikfélagsins að Eyjarslóð 9. Leikstjórar eru Rúnar Lund og Sigurður H. Pálsson. Í Helgi dauðans beinir höfundur sjónum sínum að veruleika íslenskra háskólanema sem reyna eftir fremsta megni að feta einstigið milli lærdóms og skemmtunar, þó skemmtunin verði óvart lærdómsríkari en gott þykir. Sagt er frá þremur ungmennum sem búa saman í íbúð á óræðum stað í miðbænum. Hjá þeim eru heimavanir misjafnir sauðir og þegar ein heimasætan heldur upp á afmælið sitt verður úr því geysimikið – partí....

Sjá meira

Elsku barn í Borgarleikhúsinu

Borgarleikhúsið frumsýndi í vikunni sem leið leikritið Elsku barn eftir breska leikskáldið Dennis Kelly í þýðingu Hafliða Arngrímssonar. Elsku barn er nístandi leikrit sem fjallar um óbærilegan sársauka og lætur engan ósnortinn. Hér er á ferð heimildaleikrit sem fjallar um tilraunir fólks til að leita sannleikans. Í þeirri mögnuðu leit komumst við á snoðir um margvíslega birtingarmynd lyginnar. Leikstjóri er Jón Páll Eyjólfsson. Ung móðir er sökuð um að hafa myrt börn sín tvö. Þó er alls ekki ljóst hvort um morð er að ræða eða sorglegt slys. Málið vekur athygli almennings og áhuga hinna ólíklegustu aðila. Leikritið er...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert