Blessað barnalán í Hveragerði
Leikfélag Hveragerðis æfir nú af kappi leikritið Blessað barnalán eftir Kjartan Ragnarsson. Leikstjóri er Sigurður Blöndal sem enn á ný leggur Leikfélaginu til krafta sína. Fyrsta leikritið sem hann leikstýrði fyrir 10 árum síðan var Týnda teskeiðin, líka eftir Kjartan. Hann leikstýrði einnig Emil í Kattholti, Dýrunum í Hálsaskógi og Kardemommubænum hjá Leikfélaginu sem öll hafa náð metaðsókn. Leikarar eru 11 og með helstu hlutverk fara Hafdís Guðmundsdóttir, Aðalheiður Ásgeirsdóttir, Guðmundur Erlingsson og Viktoría Kristinsdóttir. Til gamans má geta þess að tvær dætur Viktoríu þær Þórey og Aðalheiður fara einnig með hlutverk í leiknum. Þórey sem er ung að...
Sjá meira


