Year: 2011

Snúður og Snælda sýnir Rauðu klemmuna

Leikfélagið Snúður og Snælda er nú að hefja sitt 21. leikár. Það má því segja að leikfélagið sé búið að slíta barnsskónum. En á síðasta ári hélt það upp á 20 ára afmælið með sýningu á Nakinn maður og annar í kjólfötum eftir Dario Fo. Að þessu sinni býður félagið upp á leikritið Rauða klemman eftir Hafstein Hansson. Verkið gerist á lítilli veitingastofu þar sem óvæntan gest ber að garði sem reynir að auðgast á kostnað annarra. Afar kunnulegt stef. Frumsýnt verður í Iðnó n.k. sunnudag, 20. febrúar, kl. 14.00. Hér er á ferðinni gamanleikur þar sem alls konar...

Sjá meira

Freyvangsleikhúsið frumsýnir Góða dátann Svejk

Laugardaginn 19. febrúar klukkan 20:00 frumsýnir Freyvangsleikhúsið í Eyjafjarðarsveit hið stórskemmtilega og sígilda verk, Góði Dátinn Svejk, í leikgerð Írans Colin Teevan. Munu sýningar standa fram á vor. Stór hópur leikara og annara góðhjartaðra koma að uppsetningunni eða um fimmtíu manns, er síðast var talið.  Leikstjóri er Þór Tulinus. Þetta er bráðfjörug sýning um ævintýri Góða Dátans Svejk í Stríðinu mikla, þar sem hann dregur dár af (sjálfsköpuðum) raunum okkar mannana með æðruleysi sínu og auðmýkt. Andlit hans ljómar af kærleika og ást til refsandi yfirboðarana sem úrskurða hann „löggiltan hálfbjána“. Hann er „fullkomlega sáttur“ hvað sem á bjátar...

Sjá meira

Aukasýningar á Súldarskeri

Vegna gríðarlegrar aðsóknar að Súldarskeri eftir Sölku Guðmundsdóttur í Tjarnarbíó er búið að bæta við fjórum auka sýningum 18. 22. 23 og 27. febrúar. Verkið er ærslafull, tragíkómísk ráðgáta sem gerist í einangruðu bæjarfélagi sem á sér ógnvænlegt leyndarmál. Tvær leikkonur leika öll hlutverkin, sem eru samtals hátt í tuttugu talsins. Leikstjóri er Harpa Arnardóttir og leikarar Aðalbjörg Árnadóttir og Maríanna Clara Lúthersdóttir. Verkið hefur hlotið lof gagnrýnanda og áhorfenda en uppselt hefur verið á allar sýningar frá frumsýningu 14. janúar. Leikhúsbarinn Majónes hefur boðið gestum upp á leikhúsbakka í anddyri Tjarnarbíós fyrir sýningar en áhorfendur geta þar notið...

Sjá meira

Sjálfstæðir leikhópar í Borgarleikhúsinu

Borgarleikhúsið hýsir á hverju ári a.m.k. tvö verkefni sjálfstæðra leikhópa. Verkefnin eru valin í samvinnu við borgaryfirvöld og stjórn Sjálfstæðu leikhúsanna (SL). Samkvæmt samkomulagi Leikfélags Reykjavíkur og Reykjavíkurborgar skal Leikfélag Reykjavíkur „tryggja hið minnsta tveimur öðrum leikflokkum afnot af húsnæði í Borgarleikhúsinu til æfinga og sýninga eins verkefnis á hverju ári. Leikflokkarnir skulu hafa endurgjaldslaus afnot af húsnæði en greiða útlagðan kostnað L.R. vegna vinnu þeirra í Borgarleikhúsinu“. Samkvæmt ofangreindu er hér með auglýst eftir umsóknum leikhópa vegna leikársins 2011/2012. Með umsókn skal senda greinargerð um verkefnið þar sem greint er skilmerkilega frá því, aðstandendum þess, framkvæmdaaðilum, listrænum stjórnendum...

Sjá meira

Lab Loki sýnir Svikarann í Tjarnarbíói

Lab Loki frumsýnir Svikarann í Tjarnarbíó laugardaginn 19. febrúar. Verkið er einleikur, fluttur af Árna Pétri Guðjónssyni, en Rúnar Guðbrandsson leikstýrir. Þeir hafa í sameiningu unnið leikgerðina sem sækir innblástur m.a. til franska rithöfundarins Jean Genet og byggir einkum á leikverki hans Vinnukonunum (Les Bonnes). Filippía Elísdóttir sér um útlit sýningarinnar og Garðar Borgþórsson hannar lýsingu og hljóðmynd. Svikarinn er í senn harmrænt verk og spaugilegt, fullt af reiði og grimmd, freníum, fóbíum og frústrasjónum, – góðlátlegu gríni og ekki sérlega góðlátlegu. Óvægin árás og miskunnarlaus einlægni. Þetta er glíma leikarans við hlutverkið, – og glíma þeirra beggja við...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert