Year: 2011

Skemmtun sem kitlar hláturtaugarnar

Leikdeild UMF VökuÁ þriðju hæð / Amor ber að dyrumLeikstjóri Þorsteinn Logi Einarsson Mér var boðið í heimsókn upp í Þjórsárver á dögunum til að heimsækja leikdeild UMF. Vöku og sjá afrakstur erfiðis þeirra undanfarnar vikur. Það þurfti ekki kurteisissaka við til að þekkjast boðið enda ekki vanur öðru en góðum og skemmtilegum sýningum hjá leikdeild Vöku. Að þessu sinni var mér boðið upp Á þriðju hæð og að fylgjast með þegar Amor ber að dyrum. Sýningin var í raun tveir farsakenndir einþáttungar, Á þriðju hæð eftir Vilhelm Mejo og Amor ber að dyrum eftir George Falk. Verkin eiga...

Sjá meira

Einþáttungahátíð í Mosfellsbæ 29. apríl

Í tengslum við aðalfund Bandalags íslenskra leikfélaga  dagana 29. apríl til 1. maí verður haldin einþáttungahátíð í Bæjarleikhúsinu í Mosfellsbæ. Hefst hún kl. 14. föstudaginn 29. apríl og stendur fram á kvöld eftir því þátttaka leyfir. Öll aðildarfélög Bandalagsins eru eindregið hvött til að taka þátt í hátíðinni.   Þátttökuskilyrði eru eftirfarandi:- Hámarkslengd leikþátta er 30 mínútur.- Umgjörð sýninga skal vera eins einföld og framast er unnt.- Ef heildarlengd sýninga fer yfir tímamörk hátíðarinnar verða þau félög sem senda flesta þætti beðin um að fækka þeim.- Frestur til að tilkynna þátttöku leikþátta á hátíðinni rennur úr 15. apríl. Umsóknareyðublöð...

Sjá meira

Aðeins ein aukasýning á Lé konungi

Fullt var upp í rjáfur og margir þurftu frá að hverfa á síðustu sýningu á Lé konungi á föstudagskvöldið. Síminn hafði logað alla vikuna og tölvuskeytum rignt inn með áskorunum um að bæta við aukasýningu, þegar ljóst var í hvað stefndi, en aðstæður í leikhúsinu voru með þeim hætti að ekki var hægt um vik. Það tókst hinsvegar að hliðra til og koma við einni aukasýningu og verður hún n.k. fimmtudag 3. mars kl: 20:00. Þjóðleikhúsinu er ljúft og skylt að verða við óskum þeirra fjölmörgu sem skorað hafa á leikhúsið og mega ekki til þess hugsa að missa...

Sjá meira

Kómedíuleikhúsið í Slipp

Kómedíuleikhúsið á Ísafirði er væntanlegt til borgarinnar með nýjustu kómedíu sína í farteskinu. Um er að ræða afar kómískan gamanleik er nefnist Vestfirskur skáldskapur á 57. mín og Vestfirsk tónlist á 27. mín. Gamanleikurinn verður sýndur í Slippsalnum í Reykjavík fimmtudaginn 3. mars og föstudaginn 4. mars báðar sýningarnar hefjast kl.20. Miðasala á sýningarnar er þegar hafin í síma 450 5565. Leikurinn hefur verið sýndur frá því í byrjun febrúar við feikna vinsældir í Arnardal fyrir vestan. Hér er á ferðinni sýning sem getur valdið heiftarlegum hlátrasköllum og er sýningin alls ekki fyrir viðkvæma. Í verkinu er leitað svara...

Sjá meira

Laugardagskvöld með Jörundi og Bólu-Hjálmari

Núna er tækifæri til að kynnast tveimur af kynlegri kvistum íslenskrar sögu á einu bretti. Leiksýningarnar Bólu-Hjálmar og Ástir og örlög Jörundar hundadagakonungs verða sýndar í Gaflaraleikhúsinu í Hafnarfirði á laugardagskvöldið 26. febrúar kl. 20. Hvor sýning er tæp klukkustund að lengd og barinn verður að sjálfsögðu opinn, enda annað varla hægt þegar svona kappar segja sögu sína. Ágústa Skúladóttir leikstýrir báðum sýningunum, og hugmyndaríkur og fjörugur stíll hennar nýtur sín til hins ítrasta. Kvöldstund í Gaflaraleikhúsinu klikkar ekki. Stoppleikhópurinn verðlaunaverkið Bólu-Hjálmar. Þar segir frá kraftaskáldinu skrítna sem orti kröftugustu níðvísur síns tíma, kvað niður drauga og stóð í...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert