Í fyrra ákvað Leikfélag Keflavíkur að ráðast í skrif á revíu þar sem ansi mikið hefur gerst í sveitarfélaginu og því af nægu að taka. Haft var samband við meðlimi Breiðbandsins um að taka þátt í skrifum en þeir skrifuðu einnig revíuna sem sýnd var fyrir fjórum árum síðan. Leikfélagsdrengirnir og stjórnarmeðlimir félagsins þeir Arnar Ingi og Gustav Helgi fengu að vera með enda kom í ljós að þar voru á ferðinni öflugir, framtíðar höfundar.
Áður hafði Ómar heitinn Jóhannsson skrifað revíur félagsins og má segja að hann hafi með skrifum sínum komið revíuæðinu á kortið og í minningu hans munu þær fá að lifa áfram enda alltaf afar vel sóttar af bæjarbúum. Frá upphafi kom ekki annað til greina en að fá grínleikkonuna Helgu Brögu Jónsdóttur sem leikstýru enda þekkir hún vel til eftir að hafa sett tvær af vinsælustu revíum félagsins á svið. Samstarfið hefur gengið afar vel og leikarahópurinn þéttur og öflugur undir hennar stjórn. Þá sér magadansmærin Josy Zareen sem á og rekur magadansskóla í Reykjavík um alla dansa og dansþjálfun.
Önnur sýning verður sunnudaginn 20. mars kl. 20.00. Hægt er að nálgast allar nánari upplýsingar um sýningar á www.lk.is og í síma 4212540.
{mos_fb_discuss:2}