Year: 2011

Draumurinn sýndur í Borgarbyggð

Draumurinn gleðileikur  með söng og dansi byggður á verki Shakespeares Draumi á Jónsmessunótt frumsýndur í Borgarbyggð föstudaginn 8.júlí kl.20:00 í Valfelli. Listasmiðjan bak við eyrað frumsýnir verkið í samstarfi við Tónlistarskóla Borgarbyggðar, Dansskóla Evu Karenar og sveitarfélagið Borgarbyggð. Það er Ása Hlín Svavarsdóttir leikstjóri og mastersnemi í við Listaháskóla íslands sem gerir leikgerðina og setur verkið á svið. Þátttakendur í sýningunni eru á aldrinum 8-16 ára og sjá þeir um flesta þætti sýningarinnar, leik, söng, hljóðfæraleik og dans. Listasmiðjan fékk veglegan styrk frá Menningarráði Vesturlands á vormánuðum sem gerði hópnum kleift að leggja útí uppsetninguna. Eins og í frumverki...

Sjá meira

Í hers höndum frumsýnt á Reyðarfirði

  Leikfélag Reyðarfjarðar frumsýnir hinn glænýja gamanleik Í hers höndum í Félagslundi á Reyðarfirði 1. júlí næstkomandi. Höfundar eru Gunnar Ragnar Jónsson og Þórður Vilberg Guðmundsson og er þetta þeirra fyrsta verk. Aðeins verða tvær sýningar, sú síðari laugardaginn 2. júlí og hefjast báðar sýningar kl. 21.00. Þetta er annað árið í röð sem að Leikfélag Reyðarfjarðar gerir síðari heimsstyrjöldinni hátt undir höfði með nýju leikverki í tilefni hernámsdagsins sem haldinn er á Reyðarfirði 1. júlí ár hvert. Í sýningunni fáum við innsýn inn í hvað gerist þegar að 3000 erlendir karlmenn hellast yfir samfélag þar sem að 300...

Sjá meira

Hárið úr Hofi í Hörpu

Eftir 15 uppseldar sýningar á Hárinu í Menningarhúsinu heldur suður á bóginn og er ætlunin að sýna verkið í Hörpunni í júlí. Sýnt verður í salnum Norðurljós sem er stór kassi. Það er skemmtileg tilviljun að Jón Gunnar Þórðarson leikstýrði fyrstu uppfærslunni í Menningarhúsinu Hofi, Rocky Horror, og nú leikstýrir nú einnig fyrstu sýningunni í Hörpunni. Einnig voru þau Eyþór Ingi, Matti Matt og Jana María í Rocky Horror svo þau stíga einnig fyrst á svið í sýningu í Hörpunni. Eitt af einkennum sýningarinnar er hringleikjahúsið og mikil nánd, þau einkenni eiga eftir að haldast í Norðurljósum en nú...

Sjá meira

Listin að segja sögu – Sagnaþing á Núpi

Í heila viku í lok júlí ætla norrænir sagnaþulir að sitja saman í vestfirskri náttúrufegurð og ræða um listina að segja sögu. Þetta er í nítjánda sinn sem norrænt sagnaþing er haldið og í annað sinn hér á landi. Núpur í Dýrafirði hentar einkar vel til þessa, á miðju sögusviði Gísla sögu Súrssonar. Þar verða haldin námskeið og sagðar sögur á norrænum tungum og reyndar líka ensku því meðal leiðbeinenda eru reyndir sagnamenn, rithöfundar og leikarar frá Noregi, Svíþjóð, Danmörku, Íslandi og Bretlandseyjum. Sagnalistin hefur fylgt manninum lengi en á undanförnum árum hefur hún notið æ meiri athygli. Það...

Sjá meira

Þrjár aukasýningar á Hárinu í Hofi

Um helgina verða lokasýningar á Hárinu í Menningarhúsinu Hofi. Silfurtunglið sýndi 12 troðfullar sýningar á 15 dögum yfir páskana og kveðja Akureyri um helgina með þremur sýningum. Nú fer hver að verða síðastur að sjá Hárið því miðarnir eru að seljast upp, en þessari velgengni verður fagnað með miðnætursýningu á laugardaginn     Silfurtunglið er komið til að vera og keypti í vikunni m.a. réttinn að einum vinsælasta sögleik heimsins í dag; Spamalot.  Leikfélagið mun setja söngleikinn upp 2012, en fyrir áramót er einnig á dagskrá nýtt íslenskt leikrit og margar fleiri uppákomur sem hópurinn mun tilkynna síðar....

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert