Year: 2011

Góðir hálsar á Snæfellsnesi

Góðir hálsar er leiksýning eftir Kára Viðarsson þar sem rakin er saga Axlar-Bjarnar. Sýningin er súrrealísk syndaaflausn með karíókíívafi þar sem áhorfendur fá tækifæri til að sjá mannlegu hliðina á manni sem hingað til hefur verið talinn geðsjúkur raðmorðingi. Leiksýningin verður sú fyrsta í nýju leikhúsi sem nú rís í gamalli fiskvinnslu í Rifi á Snæfellsnesi. Leikhúsið ber heitið Frystiklefinn og verður aðstaðan formlega opnuð í nóvember næstkomandi. Sýningin og uppsetning leikhússins er samofið verkefni sem hlaut frumkvöðlastyrk Evrópu unga fólksins á þessu ári. Höfundur: Kári Viðarsson Leikarar: Alexander Roberts, Ingi Hrafn Hilmarsson, Kári Viðarsson og Snædís Ingadóttir Leikstjórar: Kári...

Sjá meira

Leiklistarhátíðin Act alone 2011

Leiklistarhátíðin Act alone verður haldin áttunda árið í röð dagana 12. – 14. ágúst. Hátíðin fer að vanda fram á Ísafirði sem gárungarnir nefna Einleikjabæinn þegar hátíðin fer fram ár hvert. Eru það orð að sönnu því mikið fjör er í bænum Act alone helgina en auk þess hefur Kómedíuleikhúsið sem einmitt er staðsett í bænum verið duglegt við að setja upp einleiki síðasta áratug. Í ár verður Act alone ekki bara á Ísafirði heldur einnig í Arnarfirði, nánar tiltekið á höfuðbóli Vestfjarða, Hrafnseyri. Rétt er að geta þess að aðgangur að öllum sýningum á Act alone er ókeypis...

Sjá meira

Umsóknarfrestur fyrir stuttverkahátíð í Færeyjum 15. ágúst

Stuttverkahátíðin í Þórshöfn í Færeyjum verður haldin 15. október á þessu ári. Færeyjar, Ísland og Noregur taka þátt og er hverju landi úthlutað 75 minútna sýningartíma sem það ráðstafar að vild. Þó mega einstakar sýningar ekki fara yfir 15 mínútur að lengd. Ef eitthvert landanna fyllir ekki tímakvótann sinn, getur annað land nýtt sér hann. Hvert leikfélag getur aðeins farið með tvö leikrit nema kvóti fyllist ekki. Einleikir verða ekki leyfðir. Frestur til að sækja um þátttöku til Bandalagsins er 15. ágúst og 1. september mun liggja fyrir hvaða sýningar fara. Ef umsóknir um sýningar sprengja tímakvóta hérlendis verður...

Sjá meira

Skjaldbakan á Hólmavík og Act alone hátíðinni

Þrjár sýningar verða á einleiknum Skjaldbakan á Hólmavík í júlí og ein á einleikjahátíðinni Act alone á Ísafirði í ágúst. Skjaldbakan er gamansamur einleikur leikinn af Smára Gunnarssyni og saminn í samstarfi við leikstjórann Árna Grétar Jóhannsson. Verkið er byggt á þeim stóratburði þegar risaskjaldbaka kom að landi á Hólmavík árið 1963. Verkið var frumsýnt 1. júlí á Hólmavík. Þetta var fyrsta sinn sem Leðurskjaldbaka, stærsta skjaldbökutegund sem til er, finnst svo norðarlega en þær búa yfirleitt sunnan við miðbaug. Skjaldbakan sem kom að landi var 2 metrar að lengd og 360 kg, og í kjölfar hófst mikið fjölmiðlafár…...

Sjá meira

Leikárið 2010-11 hjá Bandalagi íslenskra leikfélaga

Nú liggja fyrir helstu tölur um starfsemi aðildarfélaga Bandalags íslenskra leikfélaga leikárið 2010-2011 og er ljóst að í meginatriðum eru þær mjög svipaðar og undanfarin ár. Á leikárinu voru 60 aðildarfélög að Bandalaginu en fjöldi félaga með starfsemi á árinu var 39 og í þeim félögum störfuðu 2.522 félagar. Settar voru upp 91 leiksýning sem sýndar voru 572 sinnum og tóku þátt í þeim 1.682 manns. Heildarfjöldi áhorfenda á sýningum Bandalagsleikfélaganna var 38.956 manns. 20 best sóttu sýningarnar voru þessar: 1. Leikfélag Hörgdæla, Með fullri reisn – 2.800 áhorfendur á 30 sýningum2. Leikfélag Vestmannaeyja, Mamma mia (Sjens á skrens),...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert