Year: 2011

Tristram og Ísönd í Gaflaraleikhúsinu

Leikfélagið Sýnir æfir nú af kappi nýja leikgerð af riddarasögunni um Tristram og Ísönd, þeirri óbærilegu ást sem þau báru hvort til annars og þeim grimmu örlögu sem stíuðu þeim í sundur. Leikstjóri er Ármann Guðmundsson en hann semur einnig leikgerðina ásamt Guðrúnu Sóley Sigurðardóttur. Sýnt verður í Gaflaraleikhúsinu í Hafnarfirði og verður frumsýning aðra helgina í september. Sagan af Tristram og Ísönd er ein þekkasta ástarsaga miðalda en hún segir frá riddaranum Tristram, systursyni Markis Englandskonungs, sem fengið er það verkefni að vinna ástir Ísöndar Írlandsprinsessu fyrir hönd frænda síns. Ekki vill þó betur til en svo að...

Sjá meira

Leikhópurinn Maddid sýnir As Soon As They Know Me

Leikhópurinn Maddid sýnir nýtt leikhúsverk, As Soon As They Know Me, á Norðurpólnum dagana 20.-21. ágúst kl. 20:00. Verkið fjallar um hvernig nýtt umhverfi og nýjar aðstæður geta haft áhrif á okkur. Verkið er samið með svokallaðri devising leikhúsaðferð og notast við textabrot, leikspuna, tónlist og video-verk. Maddid hópurinn var stofnaður árið 2007 af Völu Ómarsdóttur og Mari Rettedal-Westlake þegar þær útskrifuðust frá Central School of Speech and Drama í London. Síðan hefur hópurinn stækkað og fjölmargir listamenn bæst við hópinn. Hópurinn leggur áherslu á tilraunir í sviðslistum þar sem mismunandi listgreinar koma saman til þess að móta heildarmyndina....

Sjá meira

Beðið eftir gæsinni á Egilsstöðum

Leikfélagið Frjálst Orð sýnir nýjan einleik eftir Ásgeir Hvítaskáld á Kaffi Egilsstöðum, fimmtudaginn 18.ágúst, klukkan 20. Jón Vigfússon leikur örvæntingarfulla veiðimanninn sem hræðist mest af öllu að vera kallaður einnar gæsar veiðimaður. En gæsin er slungin og hefur áhrif á hugarheim veiðimannsins. Bráðfyndið og kaldhæðið verk. Rödd: Steinunn Friðriksdóttir Frítt inn. Kaffi Egilsstaðir er með frábært tilboð á matseðli fyrir sýningu....

Sjá meira

Umsóknarfrestur að renna út

Stuttverkahátíðin í Þórshöfn í Færeyjum verður haldin 15. október á þessu ári. Færeyjar, Ísland og Noregur taka þátt og er hverju landi úthlutað 75 minútna sýningartíma sem það ráðstafar að vild. Þó mega einstakar sýningar ekki fara yfir 15 mínútur að lengd. Ef eitthvert landanna fyllir ekki tímakvótann sinn, getur annað land nýtt sér hann. Hvert leikfélag getur aðeins farið með tvö leikrit nema kvóti fyllist ekki. Einleikir verða ekki leyfðir. Við minnum á að frestur til að sækja um þátttöku Stuttverkahátíðin í Þórshöfn í Færeyjum, sem haldin verður 15. október nk., er 15. ágúst. Þann 1. september mun...

Sjá meira

Leikfélag Mosfellssveitar sýnir Hársprey

Föstudaginn 5. ágúst síðastliðinn var söngleikurinn Hársprey frumsýndur í Bæjarleikhúsinu hjá Leikfélagi Mosfellssveitar. Að söngleiknum koma 37 ungmenni á aldrinum 13-18 ára sem öll sameina krafta sína í leik, söng, dansi og búningagerð. Söngleikurinn er afrakstur námskeiða sem leikfélagið stóð fyrir í sumar, annars vegar leiklistarnámskeiðs og hins vegar búninganámskeiðs. Listrænir stjórnendur eru Agnes Wild, leikstjóri, Sigrún Harðardóttir, tónlistarstjóri, Elísabet Skagfjörð, danshöfundur og Eva Björg Harðardóttir sem hafði umsjón með búninga- og förðunarnámskeiðinu. Söngleikurinn sem gerist í Baltimore í upphafi 7. áratugarins segir frá Tracy Turnblad, þybbinni unglingsstúlku sem á sér þann draum heitastan að dansa í sjónvarpsþætti Corny...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert