Uppsprettan hefur, undanfarin þriðjudagskvöld, staðið fyrir upplestrarröð á nýjum íslenskum verkum í Tjarnarbíói. Leiklestrarnir eru unnir í samstarfi við Árna Kristjánsson leikstjóra. Verkin, sem eru í fullri lengd, eru afrakstur leikritunarnámskeiðs sem Árni stóð fyrir í Tjarnarbíói í haust.
Nú er komið að þriðja verkinu sem lesið og í þetta sinn verður leiklesturinn á fimmtudagskvöldið 12. febrúar.Verkið kallast Múrsteinakonan og fjallar um hvernig sagan getur endurtekið sig í gegnum kynslóðir og sjáum við hvernig nokkrar kynslóðir í kvenlegg takast á við erfiðleika sem virðast ætla að erfast.
Leikarar eru Salóme R. Gunnarsdóttir, Þórunn Magnea Magnúsdóttir, Sesselía Ólafsdóttir og Halla Margrét Jóhannesdóttir
Flutningurinn hefst kl. 20:30 í Tjarnarbíói.