Leiklistarsamband Íslands boðar til fréttamannafundar á morgun, föstudaginn 29. maí, á stóra sviði Borgarleikhússins. Fundurinn hefst kl. 15. Tilkynnt verður um hvaða sýningar og listamenn hljóta tilnefningar til Grímunnar – Íslensku leiklistarverðlaunanna árið 2009. Forseti Íslands Hr. Ólafur Ragnar Grímsson, sem jafnframt er verndari Grímunnar, afhendir þeim rúmlega 100 sviðslistamönnum viðurkenningar er tilnefningar hljóta. Kynnar hátíðarinnar Edda Björg Eyjólfsdóttir og Jóhann G. Jóhannsson slá á létta strengi og flutt verður atriði úr söngleiknum Söngvaseiði sem sýndur er í Borgarleikhúsinu um þessar mundir.
Gríman – Íslensku leiklistarverðlaunin verða veitt við hátíðlega athöfn þriðjudaginn 16. júní í Borgarleikhúsinu. Þetta verður í sjöunda sinn sem Grímuhátíðin er haldin, en Gríman var fyrst veitt sumarið 2003.
Alls komu 78 frumflutt verk til álita til Grímunnar í ár, þar af 9 útvarpsverk, 43 almennar sýningar, 15 dansverk og 11 sýningar ætlaðar börnum og/eða unglingum. Samtals störfuðu yfir eitt þúsund listamenn við þessi verk. Veitt verða verðlaun í sautján flokkum auk þess sem heiðursverðlaun Leiklistarsambands Íslands verða veitt þeim listamanni er þykir hafa skilað framúrskarandi ævistarfi í þágu sviðslista. Í ár verða í fyrsta sinn veitt verðlaun í flokknum hljóðmynd ársins, þar sem frumsköpun á sviði hljóðs er verðlaunuð.
Leiklistarsamband Íslands, heildarsamtök sviðslista á Íslandi, stendur árlega fyrir Grímunni sem einnig er uppskeruhátíð leiklistarinnar og haldin í lok hvers leikárs. Á hátíðinni eru sviðsverk og útvarpsverk verðlaunuð og listamönnum veittar viðurkenningar fyrir framúrskarandi árangur á sínu sviði.
Meðal markmiða Íslensku leiklistarverðlaunanna eru að auka fagmennsku og sérhæfingu innan sviðslista og stuðla að metnaðarfullum vinnubrögðum þeirra er starfa við sviðslistir með það að leiðarljósi að auka gildi, sýnileika og hróður sviðslista á Íslandi.