Leikfélag Húsavíkur frumsýnir Sex í sveit í Samkomuhúsinu lau. 1 .mars næstkomandi. Verkið Sex í sveit eftir Marc Camoletti er hefðbundinn gamanleikur með alls konar misskilningi, flækjum, lygum, framhjáhaldi og almennu fjöri. Valgeir Skagfjörð leikstýrir hjá LH að þessu sinni.
Sex í sveit fjallar um hjónin Benna og Þórunni sem fara í bústaðinn sinn í Eyjafirði. Hann var búinn að skipuleggja „stráka-helgi“ með besta vini sínum og reyndar viðhaldinu sínu líka á meðan Þórunn ætlaði að vera fyrir austan hjá mömmu sinni. Þegar Þórunn hins vegar kemst að því að Ragnar besti vinur Benna er á leiðinni snýst henni hugur og ákveður að vera um kyrrt í Eyjafirðinum. Það sem Benni hins vegar veit ekki er að Þórunn á líka viðhald og hún sér fram á að geta nýtt helgina með viðhaldinu sínu. Þegar svo veisluþjónustan mætir á svæðið fer allt í háaloft og misskilningurinn og lygarnar aukast svo um munar. Svo ekki sé minnst á þegar unga viðhaldið hans Benna mætir.
Hver bauð annars hverjum í mat þessa helgina? Hver heldur við hvern? Hver er kokkurinn? Hver eldar matinn? Fara þau í alvöru í leikinn „Sex í sveit“? Hvert er markmið þess leiks?
Þetta kemur allt í ljós á fjölum Samkomuhússins á Húsavík, 1. mars en þá er einmitt frumsýningin. Önnur sýning þriðjudaginn 4. mars klukkan 20:00 og svo 7., 8. og 9. mars. Miðasala á www.leikfelaghusavikur.is