Leikhópurinn Vér morðingjar sýnir um þessar mundir leikverkið Penetreitor, eftir skoska leikskáldið Anthony Neilson en sami hópur setti þetta verk upp sl. sumar undir nafni Reykvíska listaleikhússins. Leikstjóri er Kristín Eysteinsdóttir. penetreitor.jpgLeikhópurinn Vér morðingjar sýnir um þessar mundir leikverkið Penetreitor, eftir skoska leikskáldið Anthony Neilson en sami hópur setti þetta verk upp sl. sumar undir nafni Reykvíska listaleikhússins. Leikstjóri er Kristín Eysteinsdóttir.

Leikritið fjallar um tvo unga menn, Magga og Alla, sem leigja saman litla íbúð og lifa hálf tilgangslausu lífi. Samræður þeirra snúast um skemmtanir, kvennafar og gamlar kærustur. Þegar Stinni, gamall vinur þeirra, bankar upp á breytist líf þeirra. Stinni er ekki í andlegu jafnvægi og tekur miklar geðsveiflur sem Maggi og Alli eiga erfitt með að bregðast við. Stefán Hallur Stefánsson fer með hlutverk Stinna en Jörundur Ragnarsson og Vignir Rafn Valþórsson fara með hin hlutverkin. Stefán og Jörundur eru nýútskrifaðir leikarar en Vignir Rafn á eitt ár eftir á leiklistardeild Listaháskóla Íslands.

Þar sem sýningin gekk mjög vel síðasta sumar og það komust bara þrjátíu manns á hverja sýningu var ákveðið að setja hana aftur upp og ákveðið að fara lengra með verkefnið. Styrkur fékkst frá Nýsköpunarsjóði til að setja upp leikritið og ákveðið var nota ágóða af sýningunni til að koma upp sjóði til að hvetja ungt fólk sem á við geðræn vandamál að stríða til skapandi verkefna. Leikritið er hugsað til þess að fræða almenning um geðfötlun einstaklinga og erfiðleika aðstandenda þeirra. Félagar í Hugarafli, stuðningsfélagi fólks með geðraskanir, hjálpuðu til við þýðingu verksins og miðluðu af reynslu sinni við uppsetningu þess.

Ekki er ákveðið hversu margar sýningarnar á Penetreitor verða en sýnt verður eins lengi og áhugi er fyrir hendi.

Penetreitor var frumsýnt mánudaginn 11. júlí  í Sjóminjasafni Reykjavíkur, Grandagörðum 8

Miðasölusími: 699-0913 eða á ver.mordingjar@hotmail.com

Miðaverð er kr. 2000 og rennur ágóði til góðgerðamála.