Leiklistarskóli BÍL verður haldinn að Reykjum í Hrútafirði dagana 18. – 26. júní í sumar. Að þessu sinni verður boðið upp á 3 námskeið; Leiklist I, kennari Ólafur Ásgeirsson, Leikstjórn II, kennari Jenný Lára Arnþórsdóttir og Sérnámskeið fyrir leikara undir stjórn Ágústu Skúladóttur. Opnað verður fyrir skráningar 10. mars. Nánari námskeiðslýsingar verða birtar hér innan tíðar.