Laugardaginn 29.maí kl 16:00, frumsýnir Leikhópurinn Lotta fjölskylduleiksýninguna Hans klaufa í Elliðarárdalnum. Verkið skrifaði Ljóti hálfvitinn Snæbjörn Ragnarsson en auk Hans klaufa koma við sögu aðrar þekktar persónur úr ævintýraheiminum. Þar má til dæmis nefna Öskubusku og froskaprinsinn. Í framhaldi af frumsýningunni mun Leikhópurinn Lotta ferðast um landið með Hans klaufa. Sýndar verða tæplega 80 sýningar á fleiri en 50 stöðum um allt land.
Verkið segir frá því þegar Aron prins og aðstoðarmaður hans, Hans klaufi, koma heim úr löngu ferðalagi. Þegar heim kemur komast þeir að því að ekki er allt með feldu. Norn hefur komið þangað í fjarveru þeirra, lagt álög á kóngsríkið og svæft alla þegna þess og til að bæta gráu ofan á svart breytir hún Aroni prins í frosk. Nú eru góð ráð dýr og er það undir Hans klaufa komið að aflétta álögunum og bjarga kóngsríkinu. Verst bara hvað hann er mikill klaufi.
Hans klaufi hefur reyndar áður birst í sýningum Leikhópsins Lottu en það var síðasta sumar í verkinu Rauðhettu. Kom hann fram sem bróðir Grétu en þau systkinin voru send út í skóg af föður sínum þar sem þau síðar fundu sælgætishús og voru tekin föngum af illgjarnri norn.
Þetta er fjórða sumarið sem Leikhópurinn Lotta tekur sig til og setur upp barnasýningu utandyra. Sumarið 2007 var hið sívinsæla verk Torbjörns Egners, Dýrin í Hálsaskógi, sett á svið, 2008 var það Galdrakarlinn í Oz í nýrri leikgerð Ármanns Guðmundssonar og síðasta sumar Rauðhetta eftir Snæbjörn Ragnarsson.
Áhorfendum er bent á að klæða sig eftir veðri og taka með sér teppi til að sitja á. Þá eru allir kvattir til að hafa myndavél meðferðis því eftir sýningu fá börnin að spjalla við persónurnar úr leikritinu, skoða alla leikmyndina og kynnast þannig enn betur töfrum leikhússins.
Miðaverð er 1.500 krónur Þetta er því ódýr fjölskylduskemmtun sem enginn má láta framhjá sér fara.
Nánari upplýsingar um sýningarplan má finna á heimasíðu hópsins www.leikhopurinnlotta.is og á síðu hópsins á facebook.
{mos_fb_discuss:2}