Hjá Leikfélagi Dalvíkur standa nú yfir æfingar á léttri og skemmtilegri jóladagskrá sem áætlað er að frumsýna föstudaginn 7. nóvember næstkomandi kl. 20.30. Dagskrá þessi, er ber heitið „Er nálgast jólin…“ inniheldur m.a. 3 frumsamin leikverk unnin af leikhópnum og leiðbeinendum, söng, dans, undirleik og fróðleik er tengist jólunum.

Nemendur í 9. bekk Dalvíkurskóla túlka m.a. gömlu íslensku jólasveinana í kvæðagerð Jóhannesar úr Kötlum, nemendur í 4. bekk Dalvíkurskóla dansa fjörugt jólarokk, söngelskar meyjar og sveinar úr byggðalaginu taka lagið, hljómsveitin Ofnæmir leika og syngja 2 jólalög og fleira og fleira.
Umsjónaraðilar og leikstjórar sýningarinnar eru þau Arnar Símonarson, Lovísa María Sigurgeirsdóttir og Sólveig Rögnvaldsdóttir. Að sögn þeirra hafa æfingar staðið yfir síðustu 4 vikur og gengið afar vel. Það hefur verið góður andi í hópnum, mikil samstaða og afar góð samvinna.

Um tónlistarflutning sjá þeir Dagmann Ingvason og Einar Arngrímsson. Ljósahönnun er í höndum Péturs Skarphéðinssonar. Um 55 manns úr öllu byggðarlaginu koma að þessari uppfærslu með einum eða öðrum hætti.

Þessi jóladagskrá er sérstaklega hugsuð sem skemmtun fyrir alla aldurshópa og miðaverði er mjög svo stillt í hóf.  Áætlað er að bjóða upp á 12 sýningar og almennt miðaverð fyrir börn og fullorðna er einungis kr. 1.000. Miðapantanir eru í síma LD : 868 9706 og það er Hulda sem er við símann.

Nú er um að gera fyrir fjölskylduna, vini og félaga, vinnustaði og klúbba að skella sér í leikhúsið og eiga þar notalega stund í skammdeginu.

{mos_fb_discuss:2}