Leikritið var fyrst sett á svið fyrir tveimur árum í Danmörku og naut mikilla vinsælda frá frumsýningu. Þetta er í fyrsta sinn sem Charlotte Böving leikstýrir í Þjóðleikhúsinu en hefur áður unnið fjölda verkefna í íslensku leikhúsi, bæði sem leikari og leikstjóri.
Í verkinu eru birtar svipmyndir af kunnulegum aðstæðum á skemmtilegan máta. Fjallað er um egglos, barneignir, breytingarskeiðið, kynóra og kærleika á hispurslausan og húmorískan hátt. Kvennafræðarinn er verk sem má einna helst líkja við veðrið á íslandi – það breytist oft og fyrirvaralaust. Þau Maríanna Clara Lúthersdóttir og Jóhann G. Jóhannsson leika saman. Bæði bregða þau sér í nokkur hlutverk þar sem þau leika ósköp venjulegar manneskjur, hitt kynið – eða jafnvel líffæri.