Skemmtikrafturinn Kinkir Geir Ólafsson hefur af góðmennsku sinni ákveðið að gefa konum í úthverfum 101 Reykjavíkur tækifæri til að njóta kertaljósakonserts síns í tónleikahúsinu Salnum, Hamraborg 6 í Kópavogi. Kertaljósakonsertinn verður fimmtudaginn 25. september kl. 20 en ekki eru fleiri konsertar fyrirhugaðir í úthverfunum heldur mun Kinkir Geir einbeita sér að því að gleðja konur á landsbyggðinn næstu misseri.

Kinkir Geir Ólafsson er söngvari og mannkynsfræðari. Hann er líka með hjartað fullt af ást sem hann úthellir á kertaljósakonsertum sínum. En umfjöllunarefnið er ekki bara ástin. Nei þetta er líka upplýsandi dagskrá fyrir úthverfalið og aðra sveitamenn. Kinkí mun meðal annars leiða dreifbýlingana í allan sannleika um átthaga sín, nafla alheimsins: 101 Reykjavík þar sem æðiliðið býr.

Sigurför Kinkis Geirs Ólafssonar um landið hófst með frumsýningu á Seyðisfirði 27. júní s.l. en síðan lá leið hans m.a. til Ísafjarðar á einleikjahátíðina Act Alone þar sem hann sló eftirminnilega í gegn. Nánari upplýsingar á vef Lýðveldisleikhússins http://www.this.is/great/ Miðasala í síma 5 700 400 eða á www.salurinn.is

{mos_fb_discuss:2}