Leikhópurinn Fjöður í hatti sýnir leikritið Kallinn sem gat kitlað sjálfan sig á Norðurpólnum. Dr. Flosi og Vanja frænka hans eru bestu vinir. Flosi er doktor í hlæju- og kitluvísindum og safnar hlátri í krukkur. Hann dreymir um að verða heimsfrægur snillingur og komast í heimsmetabók Gunnars. Einn daginn býður hann Vönju frænku í heimsókn til að sýna henni nýjustu tilraunina. Hann hefur nefnilega fundið leið til að kitla sjálfan sig!
Sprenghlægileg og hádramatískt atvik eiga sér stað í þessari örlagaríku heimsókn Vönju frænku til Flosa. Ósýnilegur köttur skýtur upp kollinum, frisbídiskar fljúga um og Dr. Flosi þarf að taka á honum stóra sínum þegar Vanja verður óvart til vandræða. Hún á það nefnilega til að dansa allt í einu kjánalega, alveg án þess að hafa stjórn á því. Kallinn sem gat kitlað sjálfan sig er innileg og fyndin sýning ætluð börnum.
Sýningin er um 50 mínútur að lengd með söng og dansi. Svo á Dr. Flosi það til að biðja börnin um að hjálpa sér við hitt og þetta.
Sýningar:
Sun. 04. Sept kl. 14.00, Fös. 09. Sept kl. 18.00 , Sun. 11. Sept kl. 14.00, Fös. 16. Sept kl. 18.00, Sun. 18. Sept kl. 14.00, Fös. 23. Sept kl. 18.00 , Sun. 25. Sept kl. 14.00, Fös. 30. Sept kl. 18.00
Hægt er að panta miða í síma 561-0021 10.00 og 13.00 alla virka daga. Einnig er hægt að senda póst á midasala@nordurpollinn.com eða einfaldlega pantað í gegnum miða.is.
Fjöður í hatti er nýstofnaður atvinnuleikhópur en þetta er þeirra fyrsta verk undir þessu nafni.
Leikarar: Finnbogi Þorkell Jónsson og Tinna Þorvalds Önnudóttir
Leikstjórn: Árni Kristjánsson
Útlitshönnun: Ásta Fanney Sigurðardóttir, Margrét Agnes Iversen og Sif Yraola
Tónlist: Albert Hauksson
*Varúð: Getur valdið alvarlegu tilfelli af hláturskasti.