Nú eru hafnar æfingar á nýju leikverki hjá Leikfélagi Dalvíkur. Verkið samanstendur af 5 einþáttungum sem allir eru skrifaðir af leikskáldum úr Dalvíkurbyggð. Þættirnir eiga það sameiginlegt að þeir gerast í raðhúsi og það á einum og sama deginum.
Höfundar einþáttunganna eru 6, en þeir eru Lovísa María Sigurgeirsdóttir, Freyr Antonsson, Júlíus Júlíusson, Ingibjörg Hjartardóttir, Arnar Símonarson og Sólveig Rögnvaldsdóttir. Ekki hefur enn verið ákveðið yfirheiti verkanna. Leikstjóri er Saga Jónsdóttir. Þórarinn Blöndal hannar leikmynd og Pétur Skarphéðinsson lýsingu.
Leikendur eru 17 talsins og margir koma fram í fleiru en einu hlutverki. Áætlað er að frumsýna þetta nýja leikverk um miðjan nóvember. Verkið verður sýnt fram undir miðjan desember, þá verður farið í jólafrí, en síðan er stefnt aftur að sýningum á milli jóla og nýárs.