Leikritið Í hjarta Hróa hattar eftir David Farr í uppfærslu Vesturports verður frumsýnt á stóra sviði Þjóðleikhússins laugardaginn 12. september kl. 19.30 .
Gleymdu öllu því sem þú þykist vita um Hróa hött! – Hér er goðsögunni um þennan fræga útlaga snúið á hvolf í magnaðri nýrri leiksýningu, sem hefur nú þegar slegið í gegn beggja vegna Atlantshafsins.
Í þessari nýju sýningu úr smiðju Vesturports, Þjóðleikhússins og Royal Shakespeare Company ræna Hrói höttur og hinir miskunnarlausu liðsmenn hans hvern þann sem vogar sér inn í Skírisskóg, án þess að gefa nokkuð til hinna fátæku. Hér er það hin hugrakka Maríanna sem þarf að berjast fyrir réttlætinu og takast á við hin myrku öfl, en Jóhann prins þjakar almenning með ofbeldi og nýjum og hærri sköttum, og ætlar sér að leggja allt ríkið undir sig. Hrói getur lært sitthvað af Maríönnu um hvað það er að vera raunveruleg hetja, því án hennar verður landinu steypt í glötun.
Það er glæsilegur leikhópur sem kemur saman í þessari ævintýrasýningu í Þjóðleikhúsinu. Tónlistarkonan Salka Sól Eyfeld, sem hlaut nýverið Íslensku tónlistarverðlaunin, hefur samið nýja tónlist fyrir sýninguna ásamt félögum sínum og flytur hana ásamt hljómsveit á sviðinu.
Leikarar
Agla Bríet Gísladóttir, Ágúst Örn Börgesson Wigum, Baldur Trausti Hreinsson, Baltasar Breki Samper, Björn Dan Karlsson,Edda Arnljótsdóttir, Gabríel Bergman Guðmundsson, Guðjón Davíð Karlsson, Jóhannes Níels Sigurðsson, Katrín Halldóra Sigurðardóttir, Lára Jóhanna Jónsdóttir, Oddur Júlíusson, Rakel María Gísladóttir, Selma Rún Rúnarsdóttir, Sigurður Þór Óskarsson, Stefán Hallur Stefánsson, Stefán Karl Stefánsson, Þórir Sæmundsson
Höfundur
David Far
Leikstjórn
Gísli Örn Garðarsson, Selma Björnsdóttir
Tónlist
Aron Steinn Ásbjarnarson, Salka Sól Eyfeld, Sigurður Ingi Einarsson, Tómas Jónsson , Örn Ýmir Arason
Tónlistarfólk
Aron Steinn Ásbjarnarson, Salka Sól Eyfeld, Sigurður Ingi Einarsson, Tómas Jónsson , Örn Ýmir Arason
Leikmynd
Börkur Jónsson
Búningar
Emma Ryott
Lýsing
Ed McCarthy, Ken Billington
Sviðshreyfingar
Selma Björnsdóttir
Þýðing
Garðar Gíslason
Astoðarleikstjóri
Agnes Wild