Kómedíuleikhúsið og Í einni sæng frumsýna gamanleikinn Heilsugæsluna í Tjarnarbíó í kvöld, fimmtudaginn 12. mars. Um er að ræða hápólitískan gamanleik eftir Lýð Árnason lækni. Leikurinn stingur vissulega á ýmsum kýlum heilbrigðiskerfisins sem snertir okkur öll og er án vafa heitasta kartafla samfélagsins. Formið er tvíleikur þar sem leikararnir Elfar Logi Hannesson og Rakel Björk Björnsdóttir bregða sér í öll hlutverkin, lækna sem sjúllanna, sjúklinganna sum sé en alls koma 13 persónur við sögu.
Ádeila er hluti af verkinu, mörgum steinum velt og upp vakna spurningar eins og hvort heilbrigðiskerfið sé eins gott og af er látið, er það hugsanlega farið að vinna gegn tilgangi sínum, er aukinni eftirspurn sjúkdóma svarað með meira framboði, hvaða tilgangi þjónar góð heilsa og erum við kannski farin að meta lífið í magni fremur en gæðum? Þar sem verkið er samið af lækni gefur það áhorfandanum öðruvísi sýn inn í það völundarhús sem heilbrigðiskerfið vissulega er og sérstaklega gæti verið áhugavert fyrir áhorfendur að upplifa sjónarhorn þeirra sem starfa í sjálfu kerfinu og vita hvað býr að tjaldabaki. Einnig kemur fram fjölbreytt flóra af sjúklingum á öllum aldri og kynjum, sannkallaður þverskurður af samfélaginu.
Heilsugæslan var fyrst sýnd árið 2009 af Kómedíuleikhúsinu og Í einni sæng en nú hefur verkið verið uppfært enda heimsfaraldur og allskonar greiningar komið inn í heilbrigðisgeirann síðan.
Eins og áður gat er Heilsugæslan frumsýnd í Tjarnarbíó í kvöld og verða sýningar þar áfram næstu tvær vikur hið minnsta. Miðasala er á tix.is.


