Í tilefni af 15 ára afmæli Halaleikhópsins verður kaffihúsakvöld í Halanum, Hátúni 12. föstudaginn 12. og sunnudaginn 14. október og hefjast þau kl. 20.30. Félagar í Halaleikhópnum munu flytja afrakstur af námskeiði sem haldið var nú á haustdögum undir stjórn Ágústu Skúladóttur og bar nafnið Sólóstund leikarans. Einnig verður ljóðalestur og sýnt stuttverkið Hvað drap asnann? eftir Ármann Guðmundsson í leikstjórn Eddu V. Guðmundsdóttur. Frítt er inn og allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.
{mos_fb_discuss:2}