Verðlaunaverkið Gyllti drekinn eftir þekktasta samtímaleikskáld Þjóðverja um þessar mundir, Roland Schimmelpfenning, verður frumsýnt á Nýja sviði Borgarleikhússins föstudaginn 11. nóvember næstkomandi. Gyllti drekinn var valið besta leikritið í Þýskalandi árið 2010. Verkið gerist á og í næsta nágrenni austurlensks skyndibitastaðar Gyllta drekans einhvers staðar í Evrópu. Það segir segir sárar sögur af skrítnu fólki af ólíkum uppruna sem veit ekki að líf þess tengist með margslungnum hætti. Kristín Eysteinsdóttir leikstýrir verkinu.
Á ósköp venjulegu kvöldi kynnumst við hópi fólks sem veit ekki að líf þess tengist með margslungnum hætti. Austurlenskur skyndibitastaður, Gyllti drekinn, einhvers staðar í Evrópu: Fimm Asíuættaðir starfsmenn í þröngu eldhúsi, einn er án landvistarleyfis og þjáist af heiftarlegri tannpínu. Fyrir ofan veitingastaðinn býr gamall maður, hann á sér heita ósk sem enginn getur uppfyllt. Eigandi matvöruverslunar í sama húsi uppgötvar af tilviljun ábatasama en hryllilega hliðarstarfsemi. Ungu elskendurnir í þakíbúðinni verða fyrir því sem alls ekki má henda þau og í nágrenninu reynir húðlöt engispretta að þóknast maurnum svo hún frjósi ekki í hel. Hvernig tengist líf mitt Kínverjanum sem ber fram Thai-súpu á veitingahúsinu handan götunnar? Tengjast örlög okkar? Hvernig? Erum við fær um að sjá tækifærin í tilviljunum sem á örskotsstundu breyta öllum okkar áætlunum í lífinu?
Roland Schimmelpfennig (1967) er um þessar mundir þekktasta samtímaleikskáld Þjóðverja. Leikrit hans hafa verið sýnd um allan heim og þau einkennast af óvæntri sýn á mannfólkið. Eitt af megineinkennum leikrita hans er hvernig hann vinnur með tímann og endurtekninguna. Gyllti drekinn var valið besta leikritið í Þýskalandi árið 2010. Það segir sárar og skrítnar sögur af ólíku fólki. Fimm leikarar segja frá og leika allar persónur óháð kyni og aldri. Tilfinningaþrungið gamanleikrit um grimmd okkar alþjóðavædda tíma.
Þýðinguna gerði Hafliði Arngrímsson, Snorri Freyr Hilmarsson hannar leikmynd og búninga og Björn Kristjánsson (Borko) semur tónlist fyrir verkið. Alls eru 15 hlutverk í sýningunni og með þau fara Jörundur Ragnarsson, Dóra Jóhannsdóttir, Hanna María Karlsdóttir, Halldór Gylfason og Sigurður Skúlason.
{mos_fb_discuss:2}