ImageFrelsi eftir Hrund Ólafsdóttur verður frumsýnt á Smíðaverkstæðinu á föstudagskvöld. Frelsi er frumraun Hrundar í atvinnuleikhúsi. Leikstjóri er Jón Páll Eyjólfsson.

Hvað gerir þú þegar enginn hlustar á þig? Þegar ranglætið er svo mikið að þú gætir öskrað þig hásan en þú átt þér ekki rödd? Þegar lygin er svo stór að hún kæfir lífið sem þú ættir að sjá framundan? Grímur er klár menntaskólastrákur í Reykjavík sem er ekki sáttur við umhverfi sitt og samfélag. Hann kynnist Brynhildi sem er töff og leitandi stelpa og saman ákveða þau að láta í sér heyra. Hugmynd fæðist. En í heimi þar sem peningar eru mælikvarði alls, hvers virði eru þá mannslíf? Í þannig heimi geta hugmyndir um réttlæti orðið hættulegar.

ImageFrelsi er fyrsta leikrit Hrundar Ólafsdóttur sem sýnt er í atvinnuleikhúsi, og jafnframt fyrsta leikverk hennar í fullri lengd. Hún hefur áður skrifað einleiki og stutta leikþætti fyrir áhugaleikfélög, en hún hefur tekið virkan þátt í starfi áhugahreyfingarinnar bæði sem leikari og leikstjóri. Hún hefur einnig sótt fjölda leikara- og leikstjórnarnámskeiða, einkum hjá Leiklistarskóla Bandalags íslenskra leikfélaga í Svarfaðardal. Hrund var einn þátttakenda í höfundasmiðju á vegum Þjóðleikhússins og tók þátt í Höfundaleikhúsi á vegum Dramasmiðjunnar. Hrund hefur einkum starfað við kennslu í framhaldsskólum, en einnig skrifað bókmennta- og leiklistargagnrýni fyrir Morgunblaðið síðastliðin ár. Hrund er listamaður vikunnar á vef Þjóðleikhússins.

Tveir ungir leikarar þreyta nú frumraun sýna í Þjóðleikhúsinu, þau Ólafur Steinn Ingunnarson og Ísgerður Elfa Gunnarsdóttir. Aðrir leikarar í sýningunni eru Arnbjörg Hlíf Valsdóttir, Gísli Pétur Hinriksson, Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, Sigurður Skúlason og Anna Kristín Arngrímsdóttir.

Allir listrænir aðstandendur sýningarinnar eru nú að vinna sem listrænir stjórnendur við Þjóðleikhúsið í fyrsta sinn. Tónlistina semur Hallur Ingólfsson, lýsing er í höndum Sólveigar Eiríksdóttur, leikmynd og búninga gerir Ólafur Ísfjörð og aðstoðarmaður leikstjóra er Eline McKay. Jón Páll Eyjólfsson stýrir nú sínu fyrsta leikstjórnarverkefni í Þjóðleikhúsinu, en hann hefur áður starfað hér sem leikari. Jón Páll vakti mikla athygli á síðasta leikári fyrir sýninguna Þú veist hvernig þetta er, sem hann leikstýrði og samdi ásamt leikhóp Stúdentaleikhússins, en sýningin var valin athyglisverðasta áhugaleiksýning ársins og sýnd á Stóra sviði Þjóðleikhússins.