„Enginn meinar neitt af því enginn þorir því og ef einhver vildi meina eitthvað þá myndi enginn skilja það því allir héldu að hann væri að grínast.“

Frami er nýtt verk eftir Björn Leó Brynjarsson í uppsetningu sviðslistahópsins TAKATAKA. Það var frumsýnt á leiklistarhátíðinni Lókal/Reykjavík Dance Festival á dögunum, en snýr nú aftur í Tjarnarbíó og verður sýnt nokkrum sinnum í september og október.

Verkið fjallar um þrá listamanns eftir velgengni í nútímasamfélagi og baráttu hans við sjálfan sig. Hann upplifir sig á skjön við nútímann og nærir biturð sína gagnvart farsælasta listamanni Íslands ásamt því að vera heltekinn af eigin líkamsvexti. Við fylgjumst með persónunni elta galsakenndar fantasíur sínar og ranghugmyndir í leit að frama þar sem mörkin milli raunveruleika og óra mást út.

Í verkinu endurspeglast nútímaleg þörf eftir ævintýrum og breytingum í samfélagi sem stundum virðist vera komið í hugmyndafræðilegt öngstræti.

Björn Leó Brynjarsson útskrifaðist af sviðshöfundabraut LHÍ 2011 og voru þeir Kolbeinn Arnbjörnsson og Pétur Ármannsson samferða í LHÍ. TAKATAKA er samstarfhópur sviðslistamanna sem leitast að draga áhorfendur með sér í alltumlykjandi sviðsupplifun, þar sem leikur með texta og frásögn blandast tilraunum með klassískan leik, nærveru líkamans og hreyfingu.

“Einn af hápunktum hinnar frábæru Lókal/RDF hátíðar var að mínu mati, Frami; nýtt verk eftir Björn Leó Brynjarsson. Spennandi texti og uppsetningin leikstjóra og öllum aðstandendum til sóma.” – Stefán Jónsson, leikstjóri, leikstjóri og fagstjóri leiklistardeildar LHÍ

Hér má finna nánari upplýsingar um verkið: http://tjarnarbio.is/index.php/198-frami
Stikla: https://www.youtube.com/watch?v=dVoeymRJX_s

Sýningartímar
Fimmtudagur 17. september kl. 20:30
Sunnudagur 20. september, kl. 20:30
Fimmtudagur 8. október, kl. 20:30
Sunnudagur 18. október, kl. 20:30