Um athyglisverðustu áhugaleiksýningu ársins
Um helgina sýndi Leikdeild Ungmennafélagsins Eflingar sýningu sína á "Landsmótinu" í Þjóðleikhúsinu. Hörður Sigurðarson sá sýninguna á sunnudag og varð það honum tilefni hugleiðinga um hið árlega val á "Athyglisverðustu áhugaleiksýningu ársins". Athyglisverðasta leiksýningin! Þjóðleikhúsið hefur um nokkurra ára skeið valið “Athyglisverðustu áhugaleiksýningu ársins” og boðið aðstandendum hennar að sýna hana í Þjóðleikhúsinu. Þetta framtak leikhússins undir forystu Stefáns Baldurssonar vakti á sínum tíma ánægju og aðdáun innan áhugahreyfingarinnar og þótti mikil viðurkenning á gildi áhugaleiklistar í landinu. Valið hefur farið fram árlega og eins og við er að búast hefur jafnan verið töluverð umræða um það hverju sinni. Stundum virðast menn almennt sammála valnefndinni en þess á milli hafa margir verið ósammála og jafnvel hneykslast á vali nefndarinnar. Slíkt er eðlilegt og í sjálfu sér ekkert til að hafa áhyggjur af. Stefán Baldursson og hans fólk hefur enda ítrekað bent á að ekki sé endilega verið að velja bestu leiksýninguna heldur, eins og heitið gefur til kynna, “Athyglisverðustu áhugaleiksýninguna”. Í ár varð sýning Leikdeildar UMF Eflingar á Landsmótinu fyrir valinu og var af því tilefni sýnd tvisvar í Þjóðleikhúsinu um liðna helgi. Þetta er í annað sinn sem sýning Leikdeildar Eflingar er valin, því fyrir nokkrum árum var sýning þeirra á “Síldin kemur, síldin fer” valin “Athyglisverðasta áhugaleiksýningin”og í kjölfarið sýnd í Þjóðleikhúsinu. Undirritaður sá þá sýningu og þótti hún skemmtileg. Stór og fjölbreyttur leikhópur Eflingar flutti hana...
Sjá meira


