Breytingar á Leiklistarvefnum
Nýr og betri vefur Glöggir lesendur taka eflaust eftir því að Leiklistarvefurinn hefur tekið breytingum. Ástæðan er sú að samið hefur verið við nýjan þjónustuaðila og tekið hefur verið í notkun nýtt umsjónarkerfi fyrir vefinn. Þessu fylgja auknir möguleikar og væntanlega enn betri þjónusta við ykkur. Ef þið viljið kynna ykkur helstu breytingar, lesið meira hér fyrir neðan. Nýtt spjallkerfi Nýtt spjallkerfi hefur verið tekið í notkun sem er þjálla í notkun en það gamla og býður ýmsa möguleika sem það gamla hafði ekki. Innskráning Til að geta tekið þátt í spjallinu þurfið þið nú að skrá ykkur inn. Eftir sem áður getið þið tekið þátt í spjalli undir dulnefni að eigin vali. Til að skrá ykkur á vefinn þurfið þið að smella á Búa til aðgang í dálkinum til vinstri. Þar setjið þið fullt nafn, virkt netfang, umbeðið notandanafn og lykilorð og sendið inn. Tölvupóstur verður sendur á netfangið og þarf að svara honum til staðfestingar. Notendanafni og lykilorði getið þið breytt síðar ef þið viljið. Lesendur spjallsins munu sjá stutta notendanafnið sem þú velur þér en aðeins vefstjóri mun hafa aðgang að öðrum upplýsingum. Spjallið verður opið og frjálst að öðru leyti en eftir sem áður eru menn beðnir að gæta almenns velsæmis. Þegar þú hefur skráð þig inn geturðu smellt á tengilinn Mínar upplýsingar vinstra megin og skoðað eða breytt eigin upplýsingum á borð við notandanafn og...
Sjá meira


