Bingó! Frumsýning 14. apríl
Leikfélagið Hugleikur og Leikfélag Kópavogs hafa sameinað krafta sína og setja nú upp leikritið Bingó eftir Hrefnu Friðriksdóttur í leikstjórn Ágústu Skúladóttur. Í leikritinu Bingó hittast fimm manneskjur reglulega og spila Bingó. Eins og leikurinn er í eðli sínu einfaldur og segir sig nánast sjálfur, er eitthvað með tölurnar sem tengir okkur nánar persónum verksins, ekki ósvipað og tölurnar gera sig í Lost á mánudagskvöldum. Persónurnar bregðast við þeim tölum sem bingóstjórinn kallar upp, berast fram og aftur í tíma og leynt og ljóst er takmarkið bundið við stóra vinninginn. Hefur þú bragðað Bingóte? Séð Bingóbók? Dreymir þig stóra...
Sjá meira


