Author: lensherra

Áheyrnarprufa hjá LA

Leikfélag Akureyrar auglýsir eftir 9-12 ára stúlku til að leika og syngja í jólaleikriti LA! Mánudaginn 6. október nk. verður skráning í Rýminu kl. 15:00-17:00. Seinni hluta október mun LA hefja æfingar á íslensku jólaleikriti, Lápur, Skrápur og jólaskapið sem ætlunin er að sýna á aðventunni. Þetta er bráðskemmtilegt leikrit með söngvum eftir Snæbjörn Ragnarsson sem einnig semur tónlistina. Lápur og Skrápur eru einu tröllabörnin í Grýluhelli sem hafa ekki enn komist í jólaskap. Grýla mamma þeirra rekur þá því af stað úr hellinum og bannar þeim að koma til baka fyrr en þeir eru búnir að finna jólaskapið....

Sjá meira

Aðalfundur Leikfélags Hörgdæla

Mánudagskvöldið 6. október n.k. verður aðalfundur Leikfélags Hörgdæla árið 2008 haldinn á Melum í Hörgárdal og hefst hann kl. 20:30. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf auk þess sem rætt verður um starfið á komandi vetri. Allir áhugasamir eru hvattir til að mta og hafa þannig áhrif á stefnu og starf félagsins. Nýir félagar velkomnir! Stjórnin...

Sjá meira

Vigdís fyrsti Sendiherra leiklistarinnar í heiminum

Alþjóða leiklistarstofnunin, ITI, sæmdi Vigdísi Finnbogadóttur fyrrum forseta Íslands og leikhússtjóra Leikfélags Reykjavíkur titlinum Senndiherra leiklistarinnar í heiminum (World Theatre Ambassador) við hátíðlega athöfn í laugardag 27. September sl. í Madrid á Spáni. Alþjóða leiklistarstofnunin, sem stofnuð var í Prag 1948, heldur nú 32. alheimsþing sitt í höfuðborg Spánar, Madrid. Hátíð var haldin við þinglok í gærkvöldi í tilefni 60 ára afmælis stofnunarinnar á þessu ári. Við þau hátíðarhöld var Vigdís sæmd titlinum, fyrst allra. Við sama tækifæri voru einnig, í kjölfar Vigdísar, sex aðrir heimsþekktir forkólfar leiklistar víðs vegar að úr veröldinni sæmdir sama titli, en þau eru:...

Sjá meira

Þjóðleikur – einstakt tækifæri fyrir ungt leikhúsáhugafólk

Þjóðleikur er tilraunaverkefni sem Þjóðleikhúsið stendur fyrir á Austurlandi í vetur. Verkefnið miðar meðal annars að því að efla leiklistarstarf ungs fólks og hvetja til nýsköpunar í íslenskri leikritun. Þjóðleikhúsið er aðili að Vaxtarsamningi Austurlands og hefur samvinnu við menningarmiðstöð Fljótsdalshéraðs og fleiri aðila á Austurlandi um skipulag og framkvæmd þessa nýstárlega verkefnis. Þjóðleikur er fjölþætt verkefni en því mun ljúka með allsherjar leiklistarhátíð ungs fólks í vor. Allir hópar geta tekið þátt en eina skilyrðið er að að minnsta kosti einn fullorðinn einstaklingur leiði hópinn, að leikarar séu að minnsta kosti 8-10 talsins og á aldrinum 13-20 ára...

Sjá meira

Fimm sýningar eftir af Engisprettum

Leikhúsunnendum sem misstu af Engisprettum á liðnu leikári gefst nú tækifæri til að sjá þessa rómuðu leiksýningu, en efnt verður til fimm aukasýninga á verkinu nú í haust. Sýningar hefjast í Þjóðleikhúsinu um helgina.   Þetta heillandi verk serbneska leikskáldsins Biljönu Srbljanovic vakti mikla athygli á liðnu leikári og gagnrýnendur lofuðu sýninguna í hástert. Sýningin var tilnefnd til fimm Grímuverðlauna á liðnu vori. Þórhildur Þorleifsdóttir var tilnefnd fyrir leikstjórn og Guðrún S. Gísladóttir fyrir leik, en einnig hlutu útlitshönnuðir sýningarinnar allir tilnefningu, leikmyndahöfundurinn Vytautas Narbutas, búningahöfundurinn Filippía I. Elísdóttir og Lárus Björnsson ljósahönnuður. Leiksýningin þykir enda mikil veisla fyrir...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert