Author: lensherra

Gervi og leikbúningar – hugmyndavinna og hönnun

Leiklistarskóli Bandalags íslenskra leikfélaga auglýsir námskeið: Gervi og leikbúningar – hugmyndavinna og hönnun Námskeiðið miðar að því að efla skapandi hugsun frá handriti til hugmyndar, finna aðferðir til að koma hugmyndum um leikgervi og búninga á framfæri, og að lokum leggja fram fullbúnar hugmyndir með stikkprufum á búningum og gervum. Á námskeiðinu munum við reyna að skapa svipaðan grundvöll og gerist í leikhúsunum, sem miðar að sjálfstæðri hugsun,  og gefa viðkomandi fleiri tæki til að geta komið með eigin hugmyndir byggðar á handriti og framkvæmt síðan út frá þvi. Kennarar: Alda Sigurðardóttir og Ásta Hafþórsdóttir Þátttökugjald: kr. 35.000 Tími: ...

Sjá meira

Leikfélag Selfoss með tvö námskeið í haust

Leikfélag Selfoss hyggst halda tvö námskeið í leiklist í haust. Leiðbeinandi á námskeiðunum er Árni Pétur Guðjónsson leikari og verður það fyrra dagana 19.-20. september ( laugardag og sunnudag), frá klukkan 13-17 báða dagana og það seinna 24. og 25. október ( laugardag og sunnudag), frá klukkan 13-17. Á fyrra námskeiðinu verður farið mikið í líkamlega vinnu þar sem unnið verður með líkamann á tæknilegan hátt. Einnig verður farið í textavinnu, senuvinnu, mónólóga og unnið með samsetningu og fókus. Þátttakendur fá sendan léttan texta sem þeir eru beðnir um að kunna utanbókar þegar námskeiðið hefst. Kjörið fyrir byrjendur og...

Sjá meira

Harry og Heimir – með öðrum morðum

Framundan er fyrsta frumsýning leikársins í Borgarleikhúsinu og eru það stórleikararnir Sigurður Sigurjónsson, Karl Ágúst Úlfsson og Örn Árnason sem ríða á vaðið með leikrit sitt Harry og Heimi – með öðrum morðum. Leikritið er byggt á geysivinsælum útvarpsþáttum þeirra félaga um einkaspæjarana Harry Rögnvalds og Heimi Schnitzel og svakamálin sem þeir taka að sér að leysa. Nú bætast töfrar leikhússins við og hér koma einkaspæjararnir loks fyrir augu áhorfenda. Verkið er sprenghlægilegur ærslaleikur og á sviðinu eru það ekki bara þeir Harry og Heimir sem við könnunst við heldur birtast margar kunnulegar persónur úr gervasafni þeirra félaga og...

Sjá meira

Leikritunarsjóðurinn Prologos auglýsir eftir umsóknum

Leikritunarsjóðurinn Prologos auglýsir eftir umsóknum vegna fjórðu úthlutunar úr sjóðnum. Umsóknarfrestur er til 14. september, en úthlutað verður í október. Leikritunarsjóðurinn Prologos hefur nú starfað við Þjóðleikhúsið í rúmt ár og er honum ætlað að efla íslenska leikritun og hvetja til nýsköpunar í leikhúsinu. Óhætt er að segja að sjóðurinn hafi boðið leikhúsfólki mikilsverð tækifæri til að vinna að list sinni, en þegar hafa sjö leikskáld og fimm leiksmiðjuverkefni hlotið styrk úr sjóðnum.   Úthlutað er úr sjóðnum þrisvar sinnum á hverju leikári en næsti skilafrestur umsókna er 14. september. Annars vegar er auglýst eftir hugmynd að leikriti. Við...

Sjá meira

Elskendur í hádeginu

Enskt hádegisleikhús mun standa yfir í tvo daga á Kaffi Hljómalind nú í byrjun september. Er þetta í fyrsta skipti sem leikritið Elskendur – Sigurvegarar eftir Brian Friel er sýnt hér á landi. Leikendur eru Melkorka Óskarsdóttir og Adam Slynn sem bæði útskrifuðust úr enska leiklistarskólanum LAMDA á síðasta ári.   Verkið fylgir ungu írsku pari á fallegum sumardegi árið 1966 þegar aðeins fjórir dagar eru til stefnu fyrir lokapróf. Framtíðin er þeim einkar hugleikin þar sem þau eiga von á barni og eru um það bil að fara að gifta sig. Leikstjóri er Joseph Blatchley. Sýningin fer fram...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert