Author: lensherra

Leikhópurinn Lotta frumsýnir Stígvélaða köttinn

Leikhópurinn Lotta frumsýnir á laugardaginn, klukkan 16.00, glænýtt íslenskt leikrit um Stígvélaða köttinn. Þetta er sjötta sumarið sem Leikhópurinn Lotta setur upp útisýningu en síðastliðin sumur hefur hópurinn tekist á við Mjallhvíti og dvergana sjö, Hans klaufa, Rauðhettu, Galdrakarlinn í Oz og Dýrin í Hálsaskógi. Frumsýningin fer fram í Elliðaárdalnum í Reykjavík en í framhaldinu mun hópurinn ferðast með sýninguna og heimsækja yfir 50 staði víðsvegar um landið. Leikgerðina um Stígvélaða köttinn gerði Anna Bergljót Thorarensen. Þetta er annað leikritið sem hún skrifar fyrir hópinn en hún hefur verið meðlimur í Leikhópnum Lottu frá stofnun hans árið 2006. Ný...

Sjá meira

Aðalfundur Bandalags íslenskra leikfélaga 5.-6. maí 2012 á Ísafirði

Aðalfundur Bandalags íslenskra leikfélaga haldinn í Edinborgarhúsinu á Ísafirði 5.–6. maí 2012   1.     Fundarsetning. Kosning 2ja og 2ja fundarritara, sem taka þegar til starfa. Lögmæti fundarins kannað. Þorgeir Tryggvason, formaður Bandalagsins, setti fundinn og stakk upp á Sveinbirni Björnssyni og Sturlu Páli Sturlusyni frá Litla leikklúbbnum sem fundarstjórum og Ármanni Guðmundssyni, ritara skrifstofu, og Evu Björg Harðardóttur, Leikfélagi Mosfellssveitar, sem fundarriturum. Samþykkt af fundinum. Lögmæti fundarins kannað og staðfest. 2.     Kjörnefnd afgreiðir kjörbréf og afhendir atkvæðaspjöld, skýrir stöðu mála varðandi stjórnarkjör og auglýsir eftir tillögum. Kjörnefnd, skipuð Dýrleifu Jónsdóttur, Leikfélagi Hafnarfjarðar, Sigríði Láru Sigurjónsdóttur, Hugleik og Gerði Sigurðardóttur, Leikfélagi Selfoss, afhenti atkvæðaspjöld og kynnti stöðu mála varðandi stjórnarkjör. 3.     Menningarstefna Bandalagsins lesin og rædd. Þrúður Sigurðar, Leikfélagi Ölfuss og varastjórn Bandalagsins, las menningarstefnuna. Engar umræður. 4.     Staðfest inntaka nýrra félaga, félög tekin af félagaskrá. Embla Guðmundsdóttir, Umf. Reykdæla og varastjórn, kynnti aðildarfélög. Leikfélag Austur-Eyfellinga, Leikfélag Bolungavíkur og Leikfélag Flateyrar hafa sótt um inngöngu og stjórn samþykkt þau. Fundurinn staðfesti inntöku þeirra. Ekkert félag hefur sagt sig úr Bandalaginu eða verið tekið af skrá vegna árgjaldaskulda á leikárinu. 5.     Fundargerð síðasta aðalfundar afgreidd. Fundargerðin borin upp og samþykkt. 6.     Lagabreytingar. Stjórn fór fram á að breyting yrði gerð á fundardagskrá og lagabreytingar fluttar fram fyrir skýrslu formanns og reikninga. Ástæðan fyrir því var sú að það þurfti lagabreytingu til að gera það löglegt...

Sjá meira

Hláturinn lengir lífið

Leikfélag SauðárkróksTveir tvöfaldir eftir Ray CooneyLeikstjóri: Ingrid Jónsdóttir Í upphafi Sæluviku 29. apríl frumsýndi Leikfélag Sauðárkróks leikverkið „Tveir tvöfaldir“ eftir Ray Cooney, í þýðingu Árna Ibsen. Ingrid Jónsdóttir leikstýrði verkinu og er einnig hönnuður sviðsmyndar. Hönnun lýsingar var í höndum Guðbrandar Ægis Ásbjörnssonar. Tveir tvöfaldir var frumflutt af Þjóðleikhúsinu árið 1998 og naut talsverða vinsælda. Ray Cooney er einn þekktasti farsahöfundur samtímans en Leikfélag Sauðárkróks hefur sett upp fjögur leikrit eftir höfundinn. Tveir tvöfaldir, Með vífið í lúkunum, Viltu finna milljón og Eltu mig, félagi. Tveir tvöfaldir er fjörugur, skemmtilegur og fyndinn farsi sem segir frá alþingismanninum Ormi Karlssyni...

Sjá meira

How to become Icelandic in 60 minutes í Hörpu

Föstudaginn 25. maí verður leiksýningin How to become Icelandic in 60 minutes frumsýnt í Kaldalóni í Hörpu. How to become Icelandic in 60 minutes  er leikið á ensku, samin og flutt af Bjarna Hauki Þórssyni og leikstýrt af Sigurði Sigurjónssyni. Þetta er sprenghlægileg klukkustundarlöng sýning sem ætluð er öllum þeim sem vilja læra hvað það er að vera Íslendingur. How to become Icelandic in 60 minutes er sambland af söguleikhúsi og uppistandi þar sem reynt verður að kenna þeim sem sýninguna sækja að verða Íslendingar. Samstarf Bjarna Hauks og Sigurðar ætti að vera íslensku þjóðinni vel kunnugt enda hefur...

Sjá meira

Fjórar aukasýningar á Óralandi

Vegna góðrar aðsóknar hefur fjórum aukasýningum verið bætt við á sýningu Nemendaleikhúss LHÍ á Óralandi. Sýnt er í  Smiðjunni. Leikstjóri er Una Þorleifsdóttir, aðjúnkt í sviðslistum við leiklistar- og dansdeild Listaháskóla Íslands og aðrir listrænir stjórnendur eru Jón Atli Jónasson, Egill Ingibergsson og Magnús Þór Þorbergsson. Sýnt verður:Mánudaginn 21.05, kl. 20.00Fimmtudaginn 24.05., kl. 20.00Föstudaguinn 25.05., kl. 20.00Laugardaginn 26.05., kl. 16.00 Óralandið er land sem við þekkjum öll. Það er nefnilega svo vinsæll ferðamannastaður. Það veitir okkur ríkisfang án nokkurra spurninga. Fáni þess er… tja, sá fáni sem við kjósum að flagga eftir því hvernig á okkur liggur. Við eigum...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert