Kviksyndi drauma þinna – Vinnustofa i physísku leikhúsi
Dagana 18.-21. nk. júlí heldur Hrefna Lind Lárusdóttir námskeið í physísku leikhúsi í leikhúsinu Frystiklefanum á Rifi, Snæfellsnesi. Á þessu námskeiði er unnið með leiktækni Jerzy Grotowski og raddþjálfun sem byggir á hugmyndum Roy Harts. Viðfangsefnið verður draumar og þrár og verða undirmeðvitundin og draumar skoðuð í gegnum líkamstjáningu og rödd. Þátttakendur verða beðnir um að beina athygli sinni að draumum sínum og halda litla draumadagbók sem undirbúning fyrir námskeiðið. Unnið verður með spuna til að framkalla ómeðvitaðar myndir sem birtast í undirmeðvitundinni. Áhugasamir listamenn, hvort sem það eru myndlista-, sviðslista- eda tónlistarfólk geta sótt námskeiðið. Þessi vinnustofa gengur...
Sjá meira


