Author: lensherra

Sek frumsýnt hjá Leikfélagi Akureyrar

Sek eftir Hrafnhildi Hagalín í leikstjórn Ingibjargar Huldar Haraldsdóttur verður frumsýnt hjá Leikfélagi Akureyrar 4. október. Sek byggir á dómsmáli frá 19. öld. Lífsþræðir ábúenda og vinnumanns í Rifshæðarseli á Melrakkasléttu fléttast saman í örlagaríkum ástarþríhyrningi. Með því að styðjast við texta og tilsvör úr dómskjölum frá þessum tíma byggir höfundurinn, Hrafnhildur Hagalín, upp spennandi atburðarás sem kemur áhorfandanum sífellt á óvart. Hrafnhildur Hagalín er eitt af fremstu leikskáldum landsins. Hún hlaut leikskáldaverðlaun Norðurlanda árið 1992 fyrir leikrit sitt Ég er meistarinn ásamt þvi að hljóta Norrænu Útvarps- leikhúsverðlaunin og Grímuna 2013 fyrir útvarpsverkið Opið hús. Önnur leikrit Hrafnhildar eru:...

Sjá meira

Leikfélaga Rangæinga æfir Góðverkin kalla!

Æfingar eru hafnar hjá Leikfélagi Rangæinga á gamanleiknum Góðverkin kalla! Leikstjóri er Ármann Guðmundsson en hann er jafnframt einn höfunda verksins ásamt Sævari Sigurgeirssyni og Þorgeiri Tryggvasyni. Frumsýnt verður í Hellubíói á Hellu í byrjun nóvember og verður leikfélagið í samstarfi við veitingahúsið sem rekið er í húsinu. Verkið fjallar um baráttu þriggja góðgerðarfélaga í litlu þorpi úti á landi, um það hvert þeirra er best í að vera gott. Í því stríði er einskis svifist en málin flækjast þegar öll félögin fá sömu hugmynd að afmælisgjöf handa sjúkrahúsi bæjarins í tilefni að 100 ára afmæli þess. Þá er...

Sjá meira

Aðalfundur Leikfélagsins Sýnir

Aðalfundur Leikfélagins Sýnir verður haldinn mánudaginn 30. september kl. 20.00 í Gaflaraleikhúsinu í Hafnarfirði. Venjuleg aðalfundarstörf. Ræddar verða hugmyndir að næstu verkefnum. Gamlir og nýir félagar...

Sjá meira

Aðalfundur Leikfélags Hörgdæla 2013

Leikfélag Hörgdæla heldur aðalfund sinn fimmtudagskvöldið 26. september nk. kl. 20.30 á Melum í Hörgárdal. Á dagskrá eru lagabreytingar auk venjulegra aðalfundarstarfa og umræðu um spennandi vetrarstarf sem framundan er. Félagar hvattir til að mæta og ný andlit eru ætíð velkomin á...

Sjá meira

Styttist í frumsýningu á Jeppa á Fjalli

Jeppi á Fjalli verður frumsýndur föstudaginn 4. október næstkomandi á Nýja sviði Borgarleikhússins. Benedikt Erlingsson, Bragi Valdimar og Megas seiða epískan tón-sjónleik þar sem Ingvar E. Sigurðsson fer með hlutverk Jeppa. Leikhópurinn samanstendur af leikurum og tónlistarmönnum og hefur Ingvar til að mynda verið á stífum harmonikkuæfingum fyrir hlutverkið. Höfundur leikmyndar er Gretar Reynisson en í henni eru um 2500 vínflöskur. Tónlistin úr verkinu kemur út á geisladisk þar sem Megas syngur lög Jeppa. Nú þegar er uppselt á 22 sýningar verksins. Jeppi er drykkjumaður – en hann hefur líka góðar ástæður til að drekka! Hann er kúgaður kotbóndi,...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert