Author: lensherra

Blái hnötturinn, gestasýning frá Póllandi

Borgarleikhúsið Teatr Miniatura frá Gdansk í Póllandi sýnir Bláa hnöttinn í leikstjórn Erlings Jóhannessonar daganna 18. og 19. september í Tjarnarbíó í Reykiavík og 21. september í Samkomuhúsinu á Akureyri. Þetta er pólsk frumuppfærsla á leikriti Andra Snæs Magnasonar eftir margverðlaunaðri bók Sagan af bláa hnettinum, sem þýdd hefur verið á yfir 30 tungumál. Bókin segir frá hnetti þar sem einungis börn búa og einn góðan veðurdag birtist þar fullorðinn maður, geimryksugufarandsölumaðurinn Gleði-Glaumur Geimmundsson – og þannig hefst töfrandi, fallegt, en líka margslungið ævintýri. Sagan af bláa hnettinum er partur af mikillri umræðu um náttúruvernd og náttúruauðlindavernd sem á...

Sjá meira

Okkar eigin – Höfundasmiðja á Flateyri

Helgarnar 26-28. september og 4-6. / 11-13. /18-20. október verður haldin fjögurra helga leikhöfundasmiðja í Samkomuhúsi Flateyrar. Verkefnið er styrkt af Menningarráði Vestfjarða og verður kynnt öllum áhugaleikfélögum á Vestfjörðum. Val stendur um að sækja allar fjórar helgarnar eða stakar helgar eftir atvikum. Skapandi stefnumót fyrir byrjendur og lengra komna, ertu með leikrit í skúffunni eða er vandamálið að byrja koma hugmyndunum á blað? Hvað þarf til að geta sett ólíkar hugsmíðar á svið? Unnið með texta og hugmyndir til að skoða persónusköpun, smíða senur, halda þræði í uppistandi. Kraftmikil kreatív vinna fyrir áhugafólk, leikara og skáld sem unnin...

Sjá meira

Lína langsokkur í Borgarleikhúsinu

Laugardaginn 13. september kl. 14.00 frumsýnir Borgarleikhúsið Línu Langsokk í leikstjórn Ágústu Skúladóttur og nafna hennar Ágústa Eva Erlendsdóttir fer með hlutverk hinar einu sönnu Sigurlínu Rúllugardínu Nýlendínu Krúsimundu Efraimsdóttur Langsokks.  Leikmyndin er í höndum Ilmar Stefánsdóttur og María Th. Ólafsdóttir sér um búninga. Lína langsokkur, Herra Níels api og hesturinn eru aftur mætt til leiks ásamt vinum sínum Tomma og Önnu. Leiðindaskarfurinn frú Prússólín er staðráðin í að koma Línu fyrir á vandræðaheimili þannig að Lína þarf að hafa sig alla við vilji hún búa áfram á Sjónarhóli. Lína langsokkur er hjartahlýr og réttsýnn prakkari sem allar kynslóðir...

Sjá meira

Laus pláss á barna- og unglinganámskeið

Leikfélag Kópavogs stendur fyrir barna- og unglinganámskeiðum í haust. Enn eru laus pláss á námskeiðin sem hefjast 10. sept. og standa til loka nóvember. Námskeiðin eru annarsvegar fyrir aldurinn 11-12 ára og hinsvegar fyrir unglinga á aldrinum 13-16 ára. Námskeið verða vikulega á miðvikudögum kl. 16.00-17.00 fyrir yngri hóp en kl. 17.15-19.15 hjá eldri hópi 17.15. Námskeiðin standa í 10 vikur til til og með 12. nóvember. Í lok námskeiðs mun eldri hópur æfa upp og sýna stutt frumsamið leikrit og er gert ráð fyrir um tveggja vikna vinnu eftir námskeiðið í það.   Leiðbeinandi er Guðmundur L. Þorvaldsson....

Sjá meira

Róðarí, frumsýning í Tjarnarbíói

Auðlind – leiklistarsmiðja frumsýnir í Tjarnarbíói 16. september nýtt íslenskt leikrit, Róðarí eftir Hrund Ólafsdóttur. Fjögur systkini á miðjum aldri og móðir þeirra neyðast til að hittast þegar ein systirin veikist og þarf á hjálp að halda. Samheldni er ekki þeirra sterkasta hlið. Það er því þrautin þyngri að þurfa í sameiningu að ráða fram úr málum. Systkinin telja sig öll hafa fundið sér stað í tilverunni óháð hvert öðru. Stóra spurningin er hver eigi að axla ábyrgð á málum fjölskyldunnar þegar á reynir. Átökin sem eiga sér stað á sviðinu snúast um mannúð og samstöðu gegn sérhyggju og...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert