Vegna góðrar aðsóknar hefur verið ákveðið að bæta við þremur aukasýningum á Póker eftir Patrick Marber 26. 27. og 28. janúar. Leikverkið er svört kómedía sem kafar í heim karlmennsku, valdatafls, pókerspilamennsku, keppnisanda, fíknar og kennir öllum að þú skalt ávallt spila með andstæðinginn en ekki spilin sjálf, sama hvað er í húfi. Þetta er bráðskemmtilegt verk sem samsvarar mjög vel því sem er að gerast í samfélaginu í dag. Leikstjóri er Valdimar Örn Flygenring.

Leikritið hefur farið sigurförum um allt Bretland og Bandaríkin og unnið til margra verðlauna. T.d. Besta West End leikritið valið af samtökum leikskálda árið 1995 og var einnig valinn besti gamanleikurinn sama ár af Evening Standard.

Leikarar í verkinu eru Jón Stefán Sigurðsson , Ellert A. Ingimundarson, Þorsteinn Gunnar Bjarnason, Magnús Guðmundsson, Finnbogi Þorkell Jónsson og Ingi Hrafn Hilmarsson.

Aðrir aðstandendur eru:
Framleiðandi: Vala Ómarsdóttir
Ljósahönnun: Björn Elvar Sigmarsson
Hljóðmynd: Ásta Kristín Guðrúnardóttir
Leikmynd: Svanur Þór Bjarnason
Tæknistjórn: Hinrik Þór Svavarsson
Sýningarstjóri: Ólöf Hugrún Valdimarsdóttir
Þýðandi: Jón Stefán Sigurðsson

Hægt er að kaupa miða á http://www.tjarnarbio.is

Frekari upplýsingar: http://www.fullthus.net

{mos_fb_discuss:2}