Allar Fréttir

Uppsprettan, breytt tímasetning

Uppsprettan hefur, undanfarin þriðjudagskvöld, staðið fyrir upplestrarröð á nýjum íslenskum verkum í Tjarnarbíói. Leiklestrarnir eru unnir í samstarfi við Árna Kristjánsson leikstjóra. Verkin, sem eru í fullri lengd, eru afrakstur leikritunarnámskeiðs sem Árni stóð fyrir í Tjarnarbíói í haust....

Brennuvargar í Samkomuhúsinu á Húsavík?

Heyrst hefur að tveir brennuvargar hafi hreiðrað um sig á loftinu hjá herra Biedermann, í gamla Samkomuhúsinu á Húsavík. Hvort rétt reynist kemur í ljós kl. 16.00 laugardaginn 7. febrúar þegar Leikfélag Húsavíkur frumsýnir Brennuvargana eftir Max Frisch í...

Björt í sumarhúsi í Tjarnarbíói

Björt í sumarhúsi er nýr íslenskur söngleikur fyrir börn á öllum aldri eftir Elínu Gunnlaugsdóttur og Þórarin Eldjárn. Textinn byggir á ljóðum úr bókinni „Gælur, fælur og þvælur“. Leikstjóri er Ágústa Skúladóttir, Kristina Berman gerir leikmynd og búninga. Næatu sýningar eru kl....

Konan við 1000° á Stóra sviðið

Leikritið Konan við 1000° eftir Hallgrím Helgason hefur nú verið leikið fyrir fullu húsi í Kassanum Þjóðleikhúsinu frá því í september. Verkið hefur fengið frábærar viðtökur hjá gagnrýnendum og leikhúsgestum og ekkert lát virðist vera á vinsældum sýningarinnar. Nú...

Kuggur og leikhúsvélin í Þjóðleikhúsinu

Þjóðleikhúsið frumsýnir í Kúlunni 14. febrúar kl. 13.00 nýtt leikrit eftir Sigrúnu Eldjárn um gleðigjafann Kugg og félaga hans. Áður hefur Sigrún skrifað fjölmargar vinsælar bækur um Kugg, Mosa, Málfríði og mömmu hennar, en þetta er í fyrsta sinn...

Halaleikhópurinn frumsýnir Tíu litla strandaglópa

Halaleikhópurinn setur á svið morðsögu eftir drottningu glæpasagnanna, Agöthu Christie, Tíu litlir strandaglópar (And then there were none), í leikstjórn Guðjóns Sigvaldasonar. Frumsýning er föstudaginn 30. janúar kl. 20.00. Halaleikhópurinn var stofnaður 27. september 1992 með það að markmiði...

Inntökupróf í Rose Bruford

Rose Bruford leiklistarháskólin mun halda inntökupróf og viðtöl fyrir allar deildir í Hinu Húsinu, Reykjavík dagana 21. og 22. mars 2015. Rose Bruford er alþjóðlegur leiklistarháskóli í London. Námið hefst í október 2015.   Rose Bruford var valinn besti leiklistarháskóli...

Arty Hour #10 í Tjarnarbíói

Á síðasta ári voru reglulega haldnir viðburðir í Tjarnarbíó undir nafninu Arty Hour, en þar komu fram þeir listamenn sem voru með vinnustofu eða með verk í vinnslu í Tjarnarbíó. Á morgun verður þeirri hefð haldið áfram. Arty Hour...

Uppsprettan – skyndileikhús

Næst sýning Uppsprettunnar – skyndileikhúss, verður mánudaginn 9. Febrúar. Uppsprettan, sem hefur verið að hasla sér völl í íslensku leihúslífi, hefur það að markmiði að kynna nýja íslenska höfunda og gefa leikurum og leikstjórum tækifæri á að sýna sig...

Eldbarnið, söfnun á Karolina fund

Skaftáreldar eru sögusvið Möguleikhússins í nýju barnaleikriti, þar sem þessir afdrifaríku atburðir Íslandssögunnar eru séðir frá sjónarhóli barns. Lítil stúlka virðist mega sín lítils þegar veröldin tekur hamskiptum og hætturnar virðast búa við hvert fótmál. En hugrekki og hjartahlýja...

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert