Sýning Leikfélags Húsavíkur á Rocly Horror var valin Athyglisverðasta áhugaleiksýning ársins 2026 af valnefnd Þjóðleikhússins. Ásdís Þórhallsdóttir tilkynnti valið á hátíðarkvöldverði í lok Bandalagsþings í Reykjanesbæ í kvöld. Halla Rún Tryggvadóttir tók við verðlaunum fyrir hönd Leikfélags Húsavíkur.
Úr umsögn dómnefndar:
Dómnefndin er snortin að sjá hversu margar, fjölbreyttar, metnaðarfullar og áhugaverðar sýningar fóru upp innan raða BÍL á liðnum vetri. Þetta er magnað út af fyrir sig og stóð dómnefndin því frammi fyrir ómögulegu verkefni.
Sýningin sem þó varð fyrir valinu eftir ítarlegar umræður og vandlega umhugsun vakti athygli af ýmsum ástæðum.
Ljóst er að mörg handtök fóru í undirbúning þessarar metnaðarfullu og djörfu sýningar. Þarna sást listfengi á mörgum póstum, lifandi tónlistarflutningur, skrautlegir búningar, litrík förðun, glæsileg leikmynd, ævintýraleg lýsing og umgjörðin að öllu leyti til þess fallin að vekja athygli.
Við hrósum hópnum fyrir áræðni, þor og dirfsku, jafnt í verkefnavali og framvæmd. Mörg skemmtileg augnablik eru okkur minnisstæð, söngurinn í háum gæðaflokki og túlkunin var oft huguð og frumleg. Innan um glys og gáska tekst líka að snerta á viðkvæmum kjarna verksins, sem er listrænt afrek.
Við óskum Leikfélagi Húsavíkur til hamingju með frábæra uppsetningu á verkinu Rocky Horror. Við hlökkum til að sjá ykkur í Þjóðleikhúsinu.
Þjóðleikhúsið býður Leikfélagi Húsavíkur að sýna Rocky Horror á sviði Þjóðleikhússins laugardaginn 13. júní næstkomandi.


